Íslandsbanki gefur Seðlabankanum og Þjóðminjasafninu mynt- og seðlasafn Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 25. mars 2017 16:37 Friðrik Sophusson, Sigríður Olgeirsdóttir og Birna Einarsdóttir, frá Íslandsbanka, ásamt Má Gðmundssyni, seðlabankastjóra og Margréti Hallgrímsdóttur, þjóðminjaverði, í dag, við afhendingu munanna. Íslandsbanki
Íslandsbanki gaf í dag Seðlabanka Íslands og Þjóðminjasafninu mynt- og seðlasafn bankans. Munirnir hafa fylgt Íslandsbanka frá stofnun bankans en um er að ræða safn sem samanstendur af 1300 munum, allt frá árinu 1675 til ársins 2000. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka. Í seðlahluta safnins má meðal annars finna Ríkisdal frá árinu 1815 ásamt prufuprentun á bráðabirgðarseðli bankans sem gefinn var út árið 1919. Í mynthluta safnsins er elsti vörupeningurinn frá árinu 1846, sem var fyrsti vörupeningurinn. Einnig má nefna brauðpening frá Bökunarfélagi Ísfirðinga sem er eina eintakið sem vitað er að sé til af þeim pening. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, afhenti Má Guðmundssyni seðlabankastjóra, safnið í dag en safnið er til sýnis í Smáralind næstu þrjár vikur í tilefni af Hönnunarmars. Haft er eftir Birnu Einarsdóttir í tilkynningu: „Það er mikil ánægja fyrir okkur að afhenda Seðlabankanum og Þjóðminjasafninu mynt- og seðlasafn bankans til að varðveita áfram þessa sögulegu heimild. Það er mjög viðeigandi að gera það núna í tengslum við Hönnunarmars þar sem þessar myntir eru margar hverjar mikið listaverk og við vitum safninu verða gerð góð skil.“ Þá lýsir Már yfir mikilli ánægju með gjöfina: „Það er mjög ánægjulegt að Íslandsbanki skuli afhenda þessa einstæðu gripi Myntsafni Seðlabanka og Þjóðminjasafns. Munirnir gefa góða innsýn í peningasögu landsmanna og þá sérstaklega hvernig saga seðla og myntar og annarra greiðslumiðla þróaðist á upphafsárum bankastarfsemi á Íslandi. Þar má bæði benda á venjulega peninga og svo þá sem í dag teljast óvenjulegir eins og svokallaðir vörupeningar. Auk þess gefur safnið góða innsýn í hönnunarferli og framleiðslu fyrstu seðlanna sem prentaðir voru hérlendis.“
Mest lesið Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Atvinnulíf Pipar/TBWA með flesta Lúðra Viðskipti innlent Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Samstarf Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Viðskipti innlent Skipti ekki máli hvaðan olían er Viðskipti innlent Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Samstarf Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Neytendur Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Neytendur Fleiri fréttir Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Affineva bar sigur úr býtum Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Gugga fer í fyrirtækjarekstur „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Sjá meira