Leynifundur í Öskjuhlíð og krafa um peningagreiðslu frá góðkunningja lögreglu Birgir Olgeirsson og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa 14. mars 2017 11:39 Jens Gunnarsson mætir í dómssal í nóvember. Með honum á myndinni er Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, verjandi Péturs Axels. Vísir/Ernir
Aðalmeðferð er hafin í máli rannsóknarlögreglumanns sem grunaður er um brot í starfi og sætir ákæru fyrir spillingu, brot gegn þagnarskyldu og brot í opinberu starfi. Lögreglumaðurinn, Jens Gunnarsson, neitar sök í málinu en honum var vikið frá störfum í árslok 2015 þegar málið kom á borð ríkissaksóknara. Ákæra var gefin út í nóvember síðastliðnum en auk lögreglumannsins eru tveir aðrir ákærðir í málinu sem lögreglumaðurinn átti í samskiptum við í starfi sínu. Annar þeirra, Pétur Axel Pétursson, á fimmtán ára sakaferill að baki en þyngsti dómurinn er sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu kannabisplantna og hass. Til viðbótar hefur honum verið gerð sex sinnum refsing fyrir fíkniefnabrot. Pétur Axel neitaði sömuleiðis sök við þingfestingu málsins í nóvember. Þriðji maðurinn, Gottskálk Ágústsson framkvæmdastjóri hjá Öryggismiðstöðinni, er svo ákærður fyrir að samskipti við lögreglumanninn sem var lofað tveimur flugmiðum og hálfri milljón í peningum fyrir að útvega manninum skýrslu PriceWaterHouseCoopers um Kaupþing banka. Hann neitar einnig sök. Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari og saksóknari í málinu fór fram á að þinghaldið yrði lokað að hluta en verjandi Péturs Axels, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, fór fram á að þinghaldið yrði að öllu leyti lokað. Það varð niðurstaðan. Mun aðalmeðferðin standa yfir í Héraðsdómi Reykjavíkur fram eftir degi og ljúka á morgun samkvæmt dagskrá. Ákæruliðirnir sem snúa að lögreglumanninum eru alls fjórir. Gottskálk mætir í dómssal ásamt verjanda sínum, Eiríki Elís Þorlákssyni, við þingfestingu málsins í nóvember.Vísir/Ernir Eiga að hafa hist á fundi í Öskjuhlíð Í fyrsta lið ákærunnar er lögreglumaðurinn Jens, sem starfaði í fíkniefnadeild lögreglunnar, ákærður fyrir brot gegn þagnarskyldu í starfi og Pétur Axel er ákærður fyrir hlutdeild í broti lögreglumannsins. Er því lýst í ákærunni að þeir hafi hist í Öskjuhlíð í Reykjavík síðsumars eða síðla hausts 2015. Á fundi þeirra á lögreglumaðurinn að hafa upplýst Pétur Axel um að hann hefði ekki heyrt minnst á hann hjá samstarfsmönnum sínum í deildinni í einn og hálfan til tvo mánuði. Þá á hann einnig að hafa greint Pétri frá innra skipulagi og málefnum fíkniefnadeildar auk þess að greina honum frá nöfnum og hlutverki lögreglumanna í deildinni. Þá á Jens einnig að hafa upplýst ítrekað um skráningar í upplýsingakerfi lögreglunnar sem heldur utan um fíkniefnamál, mansal og vændi þegar upplýsingar sem vörðuðu manninn voru skráðar þar. Gerðist þetta frá árinu 2013 til ársloka 2015 og er Pétur Axel ákærður fyrir að hafa hvatt Jens til þess að láta sér upplýsingarnar í té. Sakaður um að hafa sent manninum sms og heimtað pening Í öðrum lið ákærunnar eru Jens og Pétur Axel ákærðir fyrir spillingu. Er lögreglumanninum gefið að sök að hafa látið meðákærða „lofa sér og tekið við frá honum Nokia 130 síma, og í lok mars 2015 eða síðar móttekið Samsung Galaxy fame síma að andvirði kr. 19.990 [...] í tengslum við starf ákærða [...] sem lögreglumaður,“ að því er segir í ákæru. Jens er einnig ákærður fyrir spillingu vegna sms-skilaboða sem hann sendi Pétri Axel í ágúst 2012 þar sem hann á að hafa heimtað pening af manninum. Jens er sakaður um að hafa óskað eftir peningagreiðslu og flugmiðum gegn því að hann útvegaði leynilega skýrslu um stöðu Kaupþings.Vísir/Valli Ætlaði að láta manninn hafa skýrslu frá slitastjórn Kaupþings Þriðji liður ákærunnar snýr einnig að spillingu og er Jens ákærður auk Gottskálks. Á Jens að hafa verið í sms-samskiptum við manninn þar sem hann lét lofa sér hálfri milljón í peningum og tveimur flugmiðum með WOW air gegn því að lögreglumaðurinn útvegaði Gottskálki skýrslu PriceWaterHouseCoopers um Kaupþing banka sem bar yfirskriftina „Slitastjórn Kaupþings banka hf. „Project Staying Alive“ September 2010. Strictly confidential.“ Ákærður fyrir stórfellda og ítrekað vanrækslu og hirðuleysi í starfi Í fjórða lið ákærunnar er Jens svo ákærður fyrir brot í opinberu starfi. Á hann að hafa „gerst sekur um stórfellda og ítrekaða vanrækslu og hirðuleysi í starfi sínu, með því að varðveita 1,18 grömm af amfetamíni og 10 millilítra af vefaukandi sterum af gerðinni bodenón undecýlenat og 20 millilítra af testósterón prípíónati í skrifborðsskúffu á vinnustað sínum [...]“ eins og segir í ákæru. Þá er Jens einnig ákærður fyrir stórfellda og ítrekaða vanrækslu og hirðuleysi í starfi sínu „með því að hafa varðveitt tvær loftskammbyssur í skrifborðsskúffu á vinnustað sínum, en ákærði sem taldi byssurnar hafa verið haldlagðar af lögreglu, gat ekki skýrt hvaða máli þær tengdust, en þær átti að varðveita í geymslu fyrir haldlagða muni.“
Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira