Valskonur keyrðu yfir Grindvíkinga í seinni hálfleiknum | Grindavík fallið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. mars 2017 19:34 Dagbjört Dögg Karlsdóttir lék vel fyrir Valsliðið í kvöld. Vísir/Stefán
Valur vann öruggan fimmtán stiga sigur á Grindavík, 83-68, í fyrsta leik kvöldsins í 26. umferð Domino´s deildar kvenna í körfubolta. Valsliðið er fjórum stigum á eftir Stjörnuliðinu í baráttunni um fjórða og síðasta sætið í úrslitakeppninni. Grindavík er áfram í neðsta sæti deildarinnar og með þessum úrslitum er ljóst að liðið er fallið í 1. deild. Grindavík getur nú bara náð Haukum að stigum en verður alltaf neðar í töflunni á lélegri árangri í innbyrðisleikjum liðanna. Haukar unnu Grindavík þrisvar sinnum í vetur. Grindvíkurkonur unnu sinn fyrsta leik á árinu í síðasta leik og byrjuðu mjög vel á Hlíðarenda í kvöld. Grindavík var þannig átta stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 26-18, og með sjö stiga forystu í hálfleik, 46-39. Valskonur vöknuðu eftir hálfleiksræðu Ara Gunnarssonar þjálfara síns og töku öll völd í seinni hálfleiknum. Valsliðið vann þriðja leikhlutann 23-14 og svo lokaleikhlutann 21-8 þar sem ekki stóð steinn yfir steini í leik gestanna úr Grindavík. Mia Loyd átti enn einn stórleikinn með Val en hún endaði með 34 stig, 15 fráköst og 5 stoðsendingar. Hallveig Jónsdóttir skoraði 14 stig og Dagbjört Dögg Karlsdóttir var með 12 stig og 4 stoðsendingar. Angela Marie Rodriguez skoraði 18 stig fyrir Grindavík og Íris Sverrisdóttir var með 17 stig.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Fótbolti Segir dóttur sína hafa gert mistök með því að velja íslenska landsliðið Fótbolti Mátti ekki kaupa íbúð Babe Ruth Sport „Þetta snýst ekki bara um Sveindísi og Karólínu“ Fótbolti Hneig niður tvisvar á risamóti í golfi Golf Dagskráin í dag: Golf og aftur golf Sport Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Viðurkenndi sök og má ekki keppa í CrossFit í fjögur ár Sport Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Körfubolti Fleiri fréttir Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Sjá meira