Faldi tæpt kíló af kókaíni í líkama sínum í 90 pakkningum Birgir Olgeirsson skrifar 3. mars 2017 15:04 Maðurinn var dæmdur til 18 mánaða fangelsisvistar. Vísir/GVA
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann til fangelsisvistar í 18 mánuði fyrir að stórfellt fíkniefnabrot. Játaði maðurinn að hafa flutt samtals 878 grömm af kókaíni til landsins sem ætlað var til söludreifingar í ágóðaskyni. Fíkniefnin flutti maðurinn til landsins sem farþegi með flugi frá Brussel í Belgíu. Hann faldi fíkniefnin í líkama sínum í 90 pakkningum. Maðurinn staðhæfði fyrir dómi að hann hefði ekki verið eigandi fíkniefnanna og að hann hafi eingöngu tekið að sér að flytja þau hingað til lands gegn þóknun. Var tekið mið af þeirri staðhæfingu mannsins við ákvörðun refsingar en þar var einnig lagt mat á dómaframkvæmd, magn fíkniefna og styrkleika þeirra. Ákvað dómurinn að hæfileg refsing yfir manninum væri átján mánaða fangelsisvist en til frádráttar þeirri refsingu kemur gæsluvarðhald sem hann hefur sætt frá 13. janúar 2017. Maðurinn var dæmdur til að greiða 1,1 milljón króna í sakarkostnað, þar af 463 þúsund krónur í þóknun til verjanda síns.
Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Fleiri fréttir Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Sjá meira