Í Steypustöðinni síðastliðinn mátti sjá eina venjulega fjölskyldu fara í bílaleik, leik sem fór gjörsamlega úr böndunum. Um var að ræða leik sem hlustendur FM95BLÖ þekkja vel og kallast hann Sofa hjá, giftast, drepa.
Hann gengur út á það að maður telur upp þrjá mismunandi aðila og þú verður að velja hvað hver á að gera með þér.
Með aðalhlutverk í Steypustöðinni fara þau Saga Garðarsdóttir, Sverrir Þór Sverrisson, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Steindi Jr. og Auðunn Blöndal. Í þessu atriði fara Ágústa Eva og Auðunn á kostum eins og sjá má hér að neðan.
Niðurstaðan, ekki fara í þennan leik með börnunum þínum. Steypustöðin er þáttur sem er bannaður innan 12 ára.