

Fangar
Forðum var það einkum á Stöð tvö sem slíkar íslenskar framhaldsseríur gengu – með heiðarlegum undantekningum auðvitað – en þau hjá RÚV hafa nú rekið af sér slyðruorðið. Það jafnast fátt á við að horfa á gott íslenskt leikið sjónvarpsefni á sunnudagskvöldi – nema náttúrlega góð bók.
Of eða van
Gallar? Ætli það ekki? Persónan sem Unnur Ösp leikur kannski gerð að fullmiklum einfeldningi. Og við myndum alveg átta okkur á því hvílíkur labbakútur lögmaðurinn er sem Gísli Örn leikur, þó að hann væri ekki japlandi á tyggjói í réttarsalnum. Systirin sem Halldóra Geirharðsdóttir leikur þyrfti kannski ekki að vera alveg svona hörð og köld – stundum hefur einmitt orðið á vegi manns fólk sem er mjög kaldlynt og brosmilt í senn og hefur sitt fram með köldu brosi og alúðlegu viðmóti.
Og svona: maður sér sums staðar að ýmsum þykir hin sterka samþætting valda og kynferðismisnotkunar jaðra við klisjugerð – þó að auðvelt sé að svara því til að svona sé þetta nú einu sinni í okkar samfélagi. Við erum tiltölulega nýfarin að horfast í augu við þessa meinsemd, sem nær svo djúpt og er enn svo umlukin skömm og þagnarhjúp.
Svo er eflaust hægt að finna eitthvað að plottinu og innri rökvísi þar – til þess þarf plottvísara fólk en mig.
Þetta er sem sé skrifað á sunnudegi og enn vitum við ekki hvernig greiðist úr málum; maður verður bara að vona að ódámurinn hljóti makleg málagjöld en stúlkunum verði hjálpað til að komast á farsælli brautir í lífinu. Því að hvað sem líður því sem kann að vera of eða van í þáttunum þá skiptir það ekki máli hjá hinu, að áhöfninni á bak við þessa þætti hefur tekist að búa til mannlíf handa okkur að fylgjast með og lifa okkur inn í – og spegla okkur í.
Þeim hefur lánast að smíða atburðarás sem hreyfir við okkur þannig að okkur langar að vita hvernig endirinn verður (varð). Og það sem er auðvitað mest um vert: Þeim hefur auðnast að skapa sterkar og sérstæðar persónur sem allar eru staddar í sínum eigin örlögum, allar lúta sínum sérstöku lögmálum, allar eru sérstakir persónuleikar en ekki dúkkulísur.
„Of stórt“
Maður man ekki eftir því að hafa séð jafngóðan leik í íslensku leiknu sjónvarpsefni. Einu sinni var mikið talað um að leikurum úr stóru leikhúsunum hætti til að leika „of stórt“ þegar þeir léku í sjónvarpi. Væru alltof mikið að baða út höndunum og þruma ræður sínar eins og öllu varðaði að í þeim heyrðist á fjórtánda bekk.
Sjálfur tók ég aldrei eftir þessu meinta vandamáli en þessi umræða varð hins vegar til þess að leikarar tóku að skrúfa niður í orku sinni og persónutöfrum þannig að þeir hættu næstum að sjást og maður hætti alveg að heyra orðaskil í íslensku leiknu efni; fólk muldraði í bringu sér og gætti þess vandlega að setja engan hljóm í röddina – því að yrði of „stórt“ – og þannig roluðust leikararnir um rotinpúrulegir og svipbrigðalausir og óskiljanlegir í nokkur ár.
Það er nú aldeilis öðru nær með þær stórkostlegu leikkonur sem eru í Föngum, í hverri magnaðri senunni á fætur annarri. Karlarnir leika allir stórvel en þetta er samt sería þar sem leikkonurnar glansa.
Persónan sem Unnur Ösp leikur kann að vera gerð að fullmiklum einfeldningi en það breytir ekki að því að við finnum sárt til með henni, hlæjum með henni – og að henni – og skynjum hana sem raunverulega og vitum á einhvern hátt að saga hennar er sönn, ólán hennar raunverulegt … Hið sama gildir með persónu Halldóru Geirharðsdóttur: við trúum á hana, vitum að hún er leiksoppur líka, með sitt falska örugga en samanbitna fas.
Og þannig má ganga á röðina: senan dásamlega þar sem persóna Margrétar Helgu lætur dæluna ganga í fáránlegri frásögn sem ætlar engan endi að taka … svipurinn á fangaverði Arndísar Hrannar, þetta sambland af því að hafa séð þetta allt og gera sér engar grillur en geta ekki gert að því að þykja vænt um skjólstæðingana … svipurinn á Steinunni Ólínu alltaf … Kristbjörg Kjeld í öllum sínum senum – konan sem vill ekki vita það sem hún veit … ógæfan og óbærileg sorgin sem greypt er í hvern andlitsdrátt Nínu Daggar … byrði barnsins sem við finnum í hverri hreyfingu Kötlu Njálsdóttur … sorgarhjúpurinn kringum Lindu, aðalpersónuna sem Þorbjörg Helga Dýrfjörð leikur svo vel.
Sem sagt gott. Og maður gerist heimtufrekur. Nú bíður maður eftir seríu um Hrunið – sem við rithöfundar höfum enn ekki náð að skrifa verulega bitastæðar skáldsögur um – og seríum þar sem fjallað er um refskák stjórnmálanna að hætti Dana. Já og auðvitað peysufatadramanu upp úr Dalalífi …
Skoðun

Litla landið sem kennir heiminum – Ísland og þróunarsamvinna í gegnum menntun GRÓ skólanna
Verena Karlsdóttir,Hreiðar Þór Valtýsson,Þór Heiðar Ásgeirsson skrifar

Öflugar varnir krefjast stöndugra fréttamiðla
Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar

Gott frumvarp, en hvað með verklagið?
Bogi Ragnarsson skrifar

Augnablikið
Magnús Jóhann Hjartarson skrifar

Það þarf ekki að biðjast afsökunar á því að segja satt
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Lífeyrissjóðirnir og Íslandsbanki, hluthafafundur á mánudag
Bolli Héðinsson skrifar

„Þegar arkitektinn fer á flug“ - opinber umræða á villigötum
Eyrún Arnarsdóttir skrifar

Heilbrigðiskerfið þarf stjórnvöld með bein í nefinu
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Börn eru hvorki veiðigjöld né öryggis- og varnarmál
Grímur Atlason skrifar

Í vörn gegn sjálfum sér?
Ólafur Stephensen skrifar

Mig langar að byggja heim með frið og umlykja með ást
Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar

Þjóðin stendur með sjúkraliðum
Sandra B. Franks skrifar

Vegið að íslenska lífeyriskerfinu
Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Ísland gjaldþrota vegna fatlaðs fólks?
Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar

Veiðigjöld, gaslýsingar og valdníðsla
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Sniðgangan á Rapyd slær öll met
Björn B. Björnsson skrifar

Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka
Birgir Finnsson skrifar

Árið 2023 kemur aldrei aftur
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Trumpistar eru víða
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Fasteignagjöld eru lág í Reykjavík
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Gerræðisleg áform í anda Ráðstjórnarríkjanna
Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar

Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi!
Rakel Ýr Isaksen skrifar

Nýbakaðir foreldrar og óbökuð loforð
Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar

Þegar bráðamóttakan drepur þig hraðar
Hólmfríður Ásta Hjaltadóttir skrifar

Samkeppnin tryggir hag neytenda
Hanna Katrín Friðriksson skrifar

Stóðhryssur ekki moldvörpur
Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar

Við getum gert betur
Einar Bárðarson skrifar

Tími til að notast við réttar tölur
Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar

Hvernig hljómar 100.000 kr. mánaðarlegur samgöngustyrkur?
Valur Elli Valsson skrifar