Allt eru þetta atburðir sem má búa sig undir. Vísir hefur tekið saman brot af því markverðasta sem verður á dagskrá á erlendum vettvangi á árinu 2017 sem er nú gengið í garð.
Janúar
- Donald Trump mun taka við embætti sem 45. forseti Bandaríkjanna þann 20. janúar.
- Afríkumótið í fótbolta karla hefst í Gabon þann 14. janúar og stendur til 5. febrúar.
- Franskir sósíalistar munu velja forsetaefni sitt sem mun etja kappi við Francois Fillon, Marine Le Pen og Emmanuel Macron í frönsku forsetakosningunum sem fram fara í vor. Francois Hollande Frakklandsforseti segist ekki sækjast eftir endurkjöri.
- Greint verður frá því hverjir fá tilnefningar til Óskarsverðlauna þann 24. janúar.

- Leiðtogar aðildarríkja ESB-ríkja koma saman til fundar á Möltu þann 3. febrúar til að ræða framtíð sambandsins eftir Brexit og hvert skal stefna. Þess verður minnst að aldarfjórðungur er liðinn frá undirritun Maastricht-sáttmálans.
- Forsetakosningar í Þýskalandi verða haldnar 12. febrúar. Fastlega er búist við að utanríkisráðherrann Frank-Walter Steinmeier verði kjörinn og taki þar við af Joachim Gauck.
- Óskarsverðlaunahátíðin fer fram í Los Angeles þann 26. febrúar.
Mars
- Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, hefur áður greint frá því að breska stjórnin muni virkja 50. grein Lissabon-sáttmálans fyrir marslok og þar með hefja formlegt útgönguferli ríkisins úr Evrópusambandinu.
- Þess verður minnst að öld er liðin frá upphafi rússnesku byltingarinnar.
- Þingkosningar í Hollandi fara fram þann 15. mars. Sérstaklega verður fylgst með hvort Geert Wilders og hægriöfgaflokkur hans nái auknum þingstyrk. Slíkt gæti mögulega gefið fyrirheit um gang mála í kosningum annars staðar í álfunni á árinu.
- Sambandsþingkosningar verða haldnar í Saarland í Þýskalandi þar sem hægriflokkurinn Alternativ für Deutschland vonast til að ná mönnum á þing.
Apríl
- Fyrri umferð frönsku forsetakosninganna fara fram þann 23. apríl. Fái enginn frambjóðandi hreinan meirihluta verður kosið milli tveggja efstu þann 7. maí.
- Þjóðaratkvæðagreiðsla um stjórnarskrárbreytingar mun fara fram í Tyrklandi í „apríl eða síðar á árinu“. Stjórnarflokkur Recep Tayyip Erdoğan Tyrklandsforseta vill með breytingunum meðal annars koma á forsetaræði í landinu, sem svipar til kerfisins í Bandaríkjunum og Frakklandi.

- Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar í Bretlandi í byrjun mánaðar og eru þetta fyrstu stærri kosningarnar frá því að Bretar greiddu atkvæði með því að yfirgefa ESB í júní 2016.
- Forsetakosningar fara fram í Íran þann 19. maí. Fastlega er búist við að Hassan Rouhani muni sækjast eftir endurkjöri.
- Fundur leiðtoga G7-ríkjanna á Sikiley. Þetta verður líklegast fyrsta þátttaka Donald Trump sem forseti Bandaríkjanna á fundi með öðrum leiðtogum stærstu ríkja heims.
Júní
- 1. júní verður þess minnst að hálf öld sé liðin frá útgáfu plötu Bítlanna, Sgt Pepper’s Lonely Hearts Club Band.
- Þingkosningar í Frakklandi fara fram 11. og 18. þúní, rúmum mánuði eftir að nýr forseti landsins verður kjörinn.
- Heimssýningin í kasöksku höfuðborginni Astana verður sett þann 10. júní.
Júlí
- Leiðtogar G20-ríkjanna koma saman í Hamborg í Þýskalandi dagana 7. til 8. júlí.
- Evrópumótið í Hollandi hefst þann 16. júlí og stendur til 6. ágúst. Íslensku stelpurnar eru í riðli með Frökkum, Austurríkismönnum og Svisslendingum.

- Stærsti stjarnfræðilegi viðburðurinn á árinu sé almyrkvinn sem gengur þvert yfir Bandaríkin mánudaginn 21. ágúst. Frá Reykjavík mun sjást lítlsháttar deildarmyrkvi sem hefst klukkan 18:21, nær hámarki klukkan 18:44 og lýkur klukkan 19:05. Við hámarkið hylur tunglið 2,2 prósent af skífu sólar. Annars hefur Stjörnufræðivefurinn að vanda tekið saman það sem mun bera hæst á árinu.
- Þess verður minnst að tuttugu ár eru liðin frá dauða Díönu prinsessu, en hún fórst í bílslysi í París þann 31. ágúst 1997.
September
- Þingkosningar eiga að fara fram í Þýskalandi í haust, en enn á eftir að ákveða dag. Þó er ljóst að kosningarnar munu fara fram á bilinu 27. ágúst til 22. október. Angela Merkel Þýskalandskanslara mun þar sækjast eftir að gegna kanslaraembættinu fjórða kjörtímabilið.
- Þingkosningar fara fram í Noregi þann 11. september.
- Alþjóðaólympíunefndin mun greina frá því þann 13. september hvar sumarleikarnir árið 2024 munu fram. París, Búdapest og Los Angeles koma til greina.

- Þess verður minnst að hálf öld verður liðin frá því að flugvél John McCain, núverandi öldungadeildarþingmanns, var skotin niður í Víetnam. Hann varði fimm árum sem stríðsfangi í hinu alræmda Hanoi Hilton.
- Fulltrúar ríkja heims munu koma saman í Bonn til að ræða loftslagsmál en loftslagsráðstefnan COP23 fer þar fram 6. til 17. nóvember.
Desember
- Nóbelsverðlaunin verða afhent í Stokkhólmi 10. desember.
- Áttundi kafli í sögunni um Stjörnustríð verður frumsýnd.
- Aðfangadagur jóla er á sunnudegi í ár, sem þýðir að jóladagur er á mánudegi og annar dagur jóla á þriðjudegi. Margir fengju því fleiri daga í fríi frá vinnu en um nýliðin jól.