Lostafyllsta auglýsingastofa landsins: 18 netföng inni á AdultFriendFinder Stefán Árni Pálsson skrifar 16. nóvember 2016 11:00 18 netföng skráð á AdultFinder. „
H:N Markaðssamskipti hljóta að vera lostafyllsta auglýsingastofa landsins. Miðað við starfsmannafjölda er 110% skráning á þessa síðu,“ segir Ingvi Jökull Logason, framkvæmdastjóri H:N Markaðssamskipta. Samkvæmt fréttum í morgun eru að minnsta kosti 10.459 netföng með endinguna .is skráð á skyndikynnasíðuna AdultFriendFinder sem auglýsir sig sem „stærsta samfélag kynlífs- og makaskiptaáhugamanna í heiminum“. Þar af eru 18 netföng með endinguna @hn.is en lénið er í eigu H:N Markaðssamskipta. Samkvæmt Vísi.is komst upp um stærðarinnar tölvuárás á gagnagrunn síðunnar, sem og vefmyndavélaklámsíðnanna iCams og Stripshow auk annarra sambærilegra síðna á sunnudag þegar vefsíðan Leaked Source sagðist hafa notendaupplýsingar 412 milljóna notenda undir höndum, þar af 340 milljóna notenda AdultFriendFinder. Til samanburðar var upplýsingum 32 milljóna notenda Ashley Madison stolið í fyrra, þar af voru 128 með íslensk netföng. Leaked Source segist hafa fengið gögnin frá nafnlausum tölvuþrjótum og hyggst vefsíðan ekki birta upplýsingarnar. „Við erum um tuttugu í húsi, þar af eru sautján með netfang sem endar á @hn.is. Ég þarf greinilega að ræða við starfsfólkið mitt,“ segir Ingvi Jökull skellihlæjandi. „Ástæðan fyrir þessu er nú einföld því við keyptum lénið hn.is af Vodafone á sínum tíma en fram að því hafði fólki boðist að skrá frítt netfang með endinguna hn.is eða heimsnet.is. Þetta eru væntanlega einhverjar leifar síðan þá. Þarna má meðal annars finna gömul lén eins og torg.is og strik.is. En góð saga á aldrei að líða fyrir sannleikann svo við skulum ekkert vera að kafa dýpra í málið. Enda hljóta allir að vera löngur búnir að skipta yfir á Tinder svo þetta er eitthvað gamalt.“
Ashley Madison-lekinn Mest lesið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Bíó og sjónvarp Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Lífið Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Lífið Líkindi með Grand Theft Auto og Red Dead Redemption Leikjavísir Fleiri fréttir Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Sjá meira