Konan með tröllatölurnar áfram með Njarðvík Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júlí 2016 11:00 Carmen Tyson-Thomas lék með Keflavík í Domino´s deildinni 2014-15. Vísir/Vilhelm
Carmen Tyson-Thomas verður með Njarðvík í Domino´s deild kvenna næsta vetur en Njarðvík fékk óvænt sæti í deildinni fyrr í þessum mánuði þegar Hamar hætti við þátttöku í deildinni. Carmen Tyson-Thomas hefur nú gengið frá nýjum samningi við Njarðvík en þetta kemur fram á karfan.is. Tyson-Thomas er þar með fyrsti bandaríski leikmaðurinn sem gengur opinberlega frá samningi fyrir komandi tímabil. Þetta eru mjög góðar fréttir fyrir Njarðvíkinga enda var Carmen Tyson-Thomas mögnuð með liðinu í 1. deildinni á síðasta tímabili. Gengi liðsins með hana innanborðs var frábært og það munaði örlitlu að liðið kæmist alla leið í lokaúrslitin um sæti í Domino´s deildinni. Það skipti síðan ekki máli því Njarðvík fékk sætið á endanum. Carmen Tyson-Thomas lék 9 leiki með liðinu og Njarðvík vann átta þeirra leikja og ennfremur þann tíma sem hún var inn á vellinum með 19,1 stigi að meðaltali í leik. Njarðvíkurkonur unnu hinsvegar aðeins 4 af 11 leikjum án hennar. Carmen Tyson-Thomas var með sannkallaðar tröllatölur í þessum níu leikjum eða 36,1 stig, 17,8 fráköst, 5,1 stolinn bolta og 4,4 stoðsendingar að meðaltali í leik. Carmen Tyson-Thomas hefur spilað áður í Domino´s-deildinni en hún var með Keflavík tímabilið 2014-15 þar sem hún fór með liðinu alla leið í lokaúrslit og bikarúrslit. Tyson-Thomas var með 26,6 stig, 12,4 fráköst, 3,8 stoðsendingar og 3,5 stolna bolta að meðaltali á Íslandsmótinu það tímabil Róbert Guðnason varaformaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur sagði við karfan.is að það væri gleðiefni að semja við Carmen þar sem hún hafi staðið sig frábærlega jafnt innan sem utan vallar og verið góð fyrirmynd. Því hafði aldrei verið spurning nema að semja við hana aftur ef tækifærið gæfist.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira