Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum tóku dýfu er þeir opnuðu fyrir skömmu vegna ákvörðunar Breta um að segja sig úr Evrópusambandinu.
Dow Jones vísitalan féll um 500 stig, um 3 prósent, á fyrstu mínútunum eftir opnun markaða ytra, S&P 500 vísitalan féll um 2,6 prósent og Nasdaq féll um 3,6 prósent. Hlutabréf í bönkum á borð við Bank of America, Citigroup og JP Morgan tóku á sig mesta höggið og lækkuðu þau um allt að sjö prósent.
Fréttastofa Reuters segir að ákvörðun Breta um að yfirgefa Evrópusambandið sé það versta sem komið hefur fyrir alþjóðlegan efnahag frá kreppunni árið 2008.
Hlutabréfamarkaðurinn á Íslandi hefur tekið skarpa dýfu niður á við í dag. engi bréfa í HB Granda lækkar mest, eða um 4,31 prósent í 120 milljóna króna viðskiptum. Úrvalsvísitalan OMXI hefur samtals lækkað um 3,5 prósent og ekkert fyrirtæki hefur hækkað.
Það sama má segja um hlutabréfavísitölur í Evrópu og Asíu sem hafa hríðfallið. Þá hefur breska pundið fallið um allt að tíu prósent og hefur það ekki verið lægra síðan 1985.
Alls óvíst er hvað tekur við nú en væntanleg úrsögn Bretlands er fordæmalaus þar sem ekkert ríki hefur áður sagt sig úr ESB. Er ljóst að hegðun aðila á markaði endurspeglar þessa óvissu.
Miklar lækkanir í Bandaríkjunum

Tengdar fréttir

Áhrif Brexit neikvæð en umfangið enn óljóst
Ingólfur Bender hefur áhyggjur af því hvaða áhrif útganga Breta mun hafa á ESB og EES í heild sinni.

Hlutabréfamarkaðir hrynja
Markaðurinn bregst mjög illa við tíðindum um væntanlegt brotthvarf Breta úr ESB

Seðlabanki Íslands: Áhrif Brexit á Ísland líklega neikvæð en ekki veruleg
Seðlabankinn segir í minnisblaði sínu að áhrifin á Ísland lýsi sér sennilega helst í samdrætti í útflutningi sjávarafurða og aðsókn ferðamanna.

Hlutabréfamarkaðurinn hér heima tekur dýfu
Hlutabréfamarkaðurinn á Íslandi hefur tekið skarpa dýfu niður á við í dag og má væntanlega rekja það til niðurstöðu Brexit-kosningarinnar.