Hannes á útopnu á Facebook til varnar Davíð Jakob Bjarnar skrifar 27. maí 2016 11:19 Hannes hefur farið víða um net með brugðinn penna til varnar Davíð og koma margir við sögu.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor hefur farið sem eldibrandur um Facebook og risið upp til varnar Davíð Oddssyni ritstjóra Morgunblaðsins og forsetaframbjóðanda. Þetta er í kjölfar framboðsfundar sem Stöð 2 blés til í gærkvöldi. Hvar þar sem eitthvað er sagt sem Hannesi sýnist ósanngjarnt gagnvart Davíð hefur hann stungið niður penna og viljað jafna leikinn. Og óhætt er að segja að Hannes hafi þurft að beita nokkurri hugkvæmni í vörn sinni ... og sókn. Óhætt er að segja að margir stuðningsmenn, sem og andstæðingar Davíðs, hafi litið til þess að Davíð hafi átt ás í erminni í þessari kosningabaráttu sem er húmor, skjáþokki og vígfimi í kappræðum. Hins vegar eru áhöld um hvort þessir kostir hafi fengið notið sín í gær, á skjánum. Aldrei kom upp sú staða að til skylminga kæmi þó Davíð færi í vígahug og þá er hann beinlínis sagður fara rangt með í sumu. Og það er einmitt þar sem Hannes kemur til skjalanna. Og hann átti í nokkrum önnum í gærkvöldi.Vigdís hefði synjað og það var það sem Davíð meinti Vísir birti strax eftir þátt frétt undir fyrirsögninni „Minnið brást Davíð Oddssyni: Lög um Kárahnjúkavirkjun komu ekki inn á borð Vigdísar“. Davíð sagði að Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti hefði getað synjað lögum um Kárahnjúkavirkjun staðfestingar ef hún hefði tekið mark á þeim fjölda undirskrifa sem skoruðu á forsetann að synja þeim lögum staðfestingar. Og sent þau í þjóðaratkvæðagreiðslu.Vigdís hefði synjað, og það var nú það sem Davíð meinti. Hannes stóð í ströngu í gærkvöldi við að koma mönnum í skilning um þetta einfalda atriði.Á það var bent að lögin voru samþykkt árið 2002, hún lét af störfum árið 1996 lögin komu því aldrei á hennar borð heldur kom þar til kasta Ólafs Ragnars Grímssonar. En, þarna skjátlast fréttamanninum illilega að mati Hannesar. „Vigdís sagði síðar að hún hefði beitt neitunarvaldinu, hefði málið hefði komið til hennar kasta. Það var það sem Davíð var að vísa í,“ segir Hannes.Gildra hins vígfima prófessorsTalsverðar umræður eru um þetta mál bæði á síðu Hannesar sjálfs sem og á Facebooksíðu Gunnars Smára Egilssonar ritstjóra. Þar sem Þorfinnur Ómarsson fréttamaður bendir á þetta atriði. En, Hannes bregður sér umsvifalaust yfir til að skakka leikinn: „Vigdís lýsti því yfir í bók eftir Ómar Ragnarsson, að hún hefði synjað um Kárahnjúkavirkjun, hefði hún verið forseti. Um það var verið að ræða. Ég hefði haldið, að sonur Ómars Ragnarssonar hefði lesið bók föður síns um þetta, þar sem þetta kemur fram.“Þorfinnur Ómarsson lendir milli steins og sleggju og í klóm hins vígfima prófessors.Þorfinnur bregst ókvæða við þessum frýjunarorðum og telur um slappan útúrsnúning að ræða: „Hann sagði skýrt, að Vigdís hefði tekið mið af tilteknum málum þegar hún staðfesti Kárahnjúkavirkjun (sem hún auðvitað gerði aldrei). Allir fjölmiðlar skildu orð hans þannig og um það hafa verið skrifaðar fréttir í kvöld. Hvergi var vísað í hina ágætu bók föður míns, sem ég kann auðvitað utanbókar (en efast um að viðkomandi frambjóðandi hafi séð).“ En, Þorfinnur er lentur í gildru hins vígfima prófessors því meðan þessu fór fram á Facebooksíðu Gunnars Smára vildi Ómar sjálfur halda þessu atriði til haga á athugasemdakerfi Vísis, þar sem hann vitnar í orðrétt í bók sína „Kárahnjúkar – með eða á móti“ sem kom út 2004 þar „sem Vigdís staðfestir að hún hefði ekki skrifað undir frumvarp um Kárahnjúkavirkjun, hefði það verið lagt fyrir hana sem forseta.“Vanþekking og vanstilling blaðamanns Freyr Rögnvaldsson blaðamaður á Eyjunni var reyndar fyrstur til að vekja athygli á þessari (meintu) staðreyndavillu – en hann greindi kappræðurnar til dæmis með eftirfarandi orðum: „Davíð var slappur. Fyrir utan staðreyndavilluna um Vigdísi og Kárahnjúka virkaði hann þreyttur og áhugalítill, stundum nánast snakillur og um það bil að rífast við stjórnendur. Leiðinda yfirlæti oft á tíðum og tilgangslaust tuð í [Þorbirni Þórðarsyni]. Lakasta frammistaðan.“Frey Rögnvaldsson einkennir vanstilling og vanþekking, að mati Hannesar.Þetta finnst Hannesi fráleit túlkun og vísar í bók Ómars. Og hefur nú skrifað sérstakan pistil um þennan þátt málsins, það er Frey: „Vanþekking og vanstilling fréttamanns“.Davíð myndað flestar ríkisstjórnir ... á lýðveldistímum Gunnar Smári vekur athygli á öðru atriði í máli Davíðs sem honum sýnist ekki standast skoðun. „Ólafur Thors myndaði fimm ríkisstjórnir. Sú fyrsta var minnihlutastjórnin 1942, sú næsta var nýsköpun 1944, þá myndaði Ólafur minnihlutastjórn 1949 og sat svo í ríkisstjórn Steingríms Steinþórssonar í framhaldi að því, myndaði sína fjórðu ríkisstjórn með framsóknarmönnum 1953 og þá fimmtu, viðreisn, 1959. Enginn íslenskur stjórnmálamaður hefur myndað fleiri ríkisstjórnir. Ekki heldur sá sem hélt því fram í kvöld að enginn hefði myndað fleiri ríkisstjórnir en hann sjálfur.“ Gerður er góður rómur að þessum orðum Gunnars Smára, en því miður skjátlast honum illilega í þessu, að mati Hannesar. Sem segir: „Davíð myndaði flestar ríkisstjórnir á lýðveldistímanum, þegar var forseti. Um það var verið að ræða. Þetta var þáttur um forsetaembættið, ekki danskan kóng.“Gunnar Smári er einn þeirra sem Hannes slær á puttana á og fær einkunina Gunnar Smári ófróði, frá prófessornum.Hannesi er hrósað fyrir að viðurkenna aldrei neitt og hann svarar staðfastur: „Hafa skal það sem sannara reynist, sagði Ari fróði. Og nú eru komnir til sögunnar Gunnar Smári ófróði og Þorfinnur ófróði. Vonandi verður þú í liði með okkur Ara.“Vafasöm kenning reist á sárindum vegna skólablaðs MR Hannes fór um víðan völl netheima í gærkvöldi og er hér að lokum nefnt dæmi þá er blaðamaður Vísis rifjar upp kenningu á Facebooksíðu sinni, undir miðnætti og höfð er eftir dr. Gesti Guðmundssyni að Davíð „blómstraði innan síns hóps og nærðist á góðum undirtektum en það færi honum bara engan veginn að vera ekki í blússandi meðbyr. Og, miðað við viðbrögðin sem ég sé vegna forsetaþáttar Stöðvar 2 er þessi greining hamarshaus beint á naglann.“ Gestur var samtíða Davíð í MR, seinna í Háskólanum og var í þessu að vísa stúdentapólitíkurinnar. Blaðamaður heldur því fram að þar hafi Davíð verið mislagðar hendur en er á miklum villigötum og er engan veginn að lesa rétt í þetta. „Ég var nú í stúdentapólitíkinni með þeim Davíð og Gesti, og ég held ólíkt Gesti, að Davíð hafi notið sín vel þar. Hann setti frægt lögbann á ólöglega utankjörstaðarkosningu (sem Álfheiður Ingadóttir skipulagði) og margt fleira. Þetta voru hörð átök, enfesta Davíðs og baráttugleði á þeim árum olli því, að eftir honum var tekið annars staðar. Hann naut sín líka vel í borgarstjórn í stjórnarandstöðu, þegar margir aðrir hopuðu af hólmi. Líklega er Gestur enn reiður og sár vegna átakanna í MR, þegar Davíð var inspector og Gestur ritstjóri Skólablaðsins og í ljós kom, að fólki fannst blaðið afar leiðinlegt,“ segir Hannes, sem setur fátt fyrir sig.Dr. Gestur Guðmundsson blandast óvænt inní leikinn og nemendapólitíkin í MR.Pétur Þorsteinsson, fyrrverandi skólastjóri, gruflar hins vegar í minni sínu og svarar Hannesi: „Þú gleymir því, Hannes, að DO var frambjóðandi vinstri manna í inspectorskjörinu og að Gestur var kosningastjóri hans. Kommúnistasellan í MA sendi DO heillaóskaskeyti til að fagna glæstum sigri á hægri manninum Þorvaldi Gylfasyni. Held meira að segja að ég hafi gert uppkast að skeytinu. Fáum dögum síðar mætti DO með Heimdallarmerkið í barminum og klæddur að borgaralegum hætti.“Að nota aðstöðu sínaPétur heldur áfram og segir að óvild milli Davíðs og Gests eigi upphaf sitt í því drama en ekki „fabúleringum“ um hvort skólablað Gests hafi verið svona leiðinlegt. „Þetta er lítið en gott dæmi um endurritun sögunnar - sviksamleg misnotkun DO á trausti vinstri manna er þurrkuð út en í hennar stað smíðuð mýta um yfirburði DO umfram alla menn - og látlausri öfund í hans garð vegna snilldarinnar.“ Ég varð vitni, norður á Akureyri, að snerru á milli Gests og Davíðs vegna kosningabrellu DO. Gestur sagði: „Þú verður að viðurkenna að þú misnotaðir aðstöðu þína meðal vinstri manna í skólanum.“ DO hló við og svaraði: „Og þú verður að viðurkenna að maður sem hefur aðstöðu og misnotar hana ekki misnotar aðstöðu sína.“
Mest lesið Viðsnúningur og Helgi Bjartur færður bak við lás og slá Innlent Slapp óvænt við fangelsi og braut ítrekað á stjúpdóttur sinni Innlent Á batavegi eftir alvarlega líkamsárás á Höfða Innlent Vilja geta sett herlög á eyju norðan Íslands Erlent Vaktin: Mikilvæg fundarhöld í Washington Erlent Fékk afa sinn með sér á skólabekk Innlent Léttara yfir formanninum eftir þriggja tíma fund Innlent Stuðningur við Grænland ómetanlegur og hvetur Íslendinga til að mæta Erlent Tveir fulltrúar taka þátt í aukinni hernaðarviðveru Innlent Verðandi sendiherra grínaðist með að Ísland yrði 52. ríkið Erlent Fleiri fréttir Slapp óvænt við fangelsi og braut ítrekað á stjúpdóttur sinni Viðsnúningur og Helgi Bjartur færður bak við lás og slá Á batavegi eftir alvarlega líkamsárás á Höfða Léttara yfir formanninum eftir þriggja tíma fund Fékk afa sinn með sér á skólabekk Lögregluaðgerð beint gegn áfengissölu í Kópavogi Boðaður á fund í ráðuneytinu með stuttum fyrirvara Sögulegur fundur um framtíð Grænlands Tveir fulltrúar taka þátt í aukinni hernaðarviðveru Tveir handteknir vegna alvarlegrar líkamsárásar Kaus að styðja karlasamtök í stað lögreglu Ræddu undanþágu losunarheimilda Brutu stjórnsýslulög við útgáfu hvalveiðileyfis Jafnlaunavottunin verður lögð af á þessu ári Ljósvistarhönnuður hoppar hæð sína af gleði vegna breytinga Skoða dóma MDE í ráðuneyti og refsiréttarnefnd Hneykslan meðal kennara vegna rangfærslna Ingu í Kastljósi „Látið undan þrýstingi stóru fyrirtækjanna í búvöruframleiðslu“ Stóri-Boli boðar breytingar og klassískt vetrarveður Bleikja strauk út í sjó úr landeldi Fundað um Grænland og Inga vill aðgreina eftir íslenskukunnáttu Dómur MDE hljóti að vera stjórnvöldum alvarlegt umhugsunarefni Á skilorði eftir að hafa kýlt, skallað og bitið konu sína Verði að bregðast við vinsældum meintra iðnaðarmanna á Facebook Baráttan um Samfylkinguna í borginni nálgast suðumark 90 prósentum landsmanna þótti skaupið gott Kannast ekki við lýsingar leigubílstjóra Alþingi kemur saman í dag eftir jólafrí Vongóð um stuðning Miðflokksins Spyr hvort það hafi borgað sig að koma Flokki fólksins til valda Sjá meira