Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakosninganna hinn 25. júní má hefjast hér innanlands og í sendiráðum og ræðisskrifstofum í útlöndum á morgun, þótt frestur til að bjóða sig fram til embættisins renni ekki út fyrr en á miðnætti hinn 20. maí. Atkvæðagreiðslan fer fram á vegum sýslumanna um land allt en utanríkisráðuneytið sér um atkvæðagreiðsluna erlendis.
Á höfuðborgarsvæðinu fer atkvæðagreiðslan í fyrstu fram á skrifstofum embættis sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu að Skógarhlíð 6, Reykjavík, og Bæjarhrauni 18, Hafnarfirði, alla virka daga á skrifstofutíma milli kl. 8:30 – 15. Skrifstofa embættisins að Skógarhlíð 6, Reykjavík, verður einnig opin um helgar frá kl. 12 – 14. Lokað verður sunnudaginn 1. maí, uppstigningardag 5. maí, hvítasunnudag 15. maí og annan í hvítasunnu, 16. maí.
Frá og með 9. júní nk. færist atkvæðagreiðslan á höfuðborgarsvæðinu í Perluna í Öskjuhlíð. Þar verður opið alla daga frá kl. 10 – 22. Lokað verður þó föstudaginn 17. júní. Á kjördag laugardaginn 25. júní nk., verður opið frá kl. 10 til kl. 17 fyrir kjósendur sem eru á kjörskrá utan höfuðborgarsvæðisins.
Sjúkrahús, dvalarheimili aldraðra, stofnanir fyrir fatlað fólk og fangelsi
Kjósanda, sem er til meðferðar á sjúkrahúsi eða vistmaður þar, eða er heimilismaður á dvalarheimili aldraðra eða stofnun fyrir fatlað fólk, er heimilt að greiða þar atkvæði. Með sama hætti fer um fangelsi og vistmenn þar. Slík atkvæðagreiðsla skal fara fram á þeim tíma sem kjörstjóri ákveður, á sjúkrahúsi sem næst kjördegi, að höfðu samráði við stjórn stofnunar. Hún má þó ekki fara fram fyrr en í fyrsta lagi þremur vikum fyrir kjördag, laugardaginn 4. júní.
Kosning í heimahúsi
Kjósanda, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi nema hann eigi kost á að greiða atkvæði á stofnun, sbr. framangreint.
Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans. Slík atkvæðagreiðsla má þó ekki fara fram fyrr en í fyrsta lagi þremur vikum fyrir kjördag, laugardaginn 4. júní, en ósk um atkvæðagreiðslu í heimahúsi verður að berast hlutaðeigandi sýslumanni
eigi síðar en fjórum dögum fyrir kjördag, þriðjudaginn 21. júní, fyrir kl. 16.
Kosið erlendis
Í tilkynningu á vef utanríkisráðuneytisins segir að utankjörfundaratkvæðagreiðsla geti farið fram í öllum sendiráðum Íslands, aðalræðisskrifstofum Íslands í New York, Winnipeg, Nuuk og Þórshöfn í Færeyjum. Einnig sé unnt að kjósa utan kjörfundar eftir samkomulagi hjá kjörræðismönnum Íslands í útlöndum. Þeim sem ætli að kjósa á ræðisskrifstofum sé vinsamlegast bent á að hafa samband við ræðismenn áður en þeir komi til að kjósa.
Gert sé ráð fyrir að kjósendur kynni sér sjálfir hverjir eru í framboði. Hagnýtar upplýsingar um kosningarnar verði að finna á vefnum www.kosning.is Athygli kjósenda er ennfremur vakin á því, að þeim beri sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi.
Listi yfir staði þar sem hægt er að kjósa í útlöndum.
![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2018-10-22T153245.909Z-Manchester_City_FC_badge.svg.png)
![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/gracenote/4087.png)