Enginn leikmaður Skallagríms var fæddur þegar liðið var síðast uppi | Myndir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. apríl 2016 16:57 Skallagrímskonur fagna sætinu í Domino's deildinni. vísir/anton
Eins og fram kom á Vísi tryggði Skallagrímur sér sæti í Domino's deild kvenna í körfubolta með sigri á KR, 56-67, í umspili um sæti í efstu deild á föstudagskvöldið. Skallagrímur vann báða leikina gegn KR og leikur því í deild þeirra bestu á næsta tímabili, í fyrsta sinn frá árinu 1976. Enginn leikmaður í Skallagrímsliðinu var fæddur þegar félagið var síðast í efstu deild. Og raunar er enginn nálægt því en elsti leikmaðurinn í liðinu, Kristrún Sigurjónsdóttir, fæddist 1985 og var því níu ára þegar Borgnesingar voru síðast í efstu deild.Kristrún gekk til liðs við Skallagrím síðasta sumar ásamt Guðrúnu Ósk Ámundadóttur en þær hafa báðar leikið landsleiki og unnið titla hér á landi. Skallagrímur tefldi einnig fram tveimur bandarískum leikmönnum, Erikka Banks og Ka-Deidre J. Simmons, í vetur. Borgnesingar voru með sterkasta liðið í 1. deildinni og unnu 18 af 20 leikjum sínum í vetur. Skallagrímur vann deildameistaratitilinn og bar svo sigurorð af KR í umspilsleikjunum eins og áður sagði.Anton Brink, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var í DHL-höllinni á föstudagskvöldið þegar Skallagrímur tryggði sér sæti í efstu deild og afraksturinn má sjá hér að ofan.vísir/anton
Dominos-deild kvenna Mest lesið Willum nýr forseti ÍSÍ með algjörum yfirburðum Sport Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Golf Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Fótbolti Erfitt að sofa eftir tvo sólarhringa á hlaupum Sport „Orðið sem ég nota er forréttindapési“ Handbolti Real staðfestir kaupin á Huijsen fyrir 8,7 milljarða Fótbolti Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Fótbolti Í beinni: Valur - Porrino | Evróputitill í boði Handbolti Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Enski boltinn „Verður stærsti dagur ævi minnar“ Fótbolti Fleiri fréttir Daníel tekur við KR Stjörnurnar fögnuðu og hátíð á götum New York eftir sigur á meisturunum Friðrik Ingi hættur með Hauka Hörður kominn undan feldinum Harkaði af sér veikindi og Nuggets tryggðu oddaleik Úlfarnir í úrslit vestursins Fékk að mæta aðeins seinna í vinnu eftir Íslandsmeistara fögnuð „Menn vissu bara upp á sig sökina“ „Þegar þeir eru orðnir þreyttir hinum megin þá erum við með eitt stykki Basile“ Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Lovísa samskiptastjóri, „mini-mes“ og ástæðan fyrir engum leikhléum Vonast til að Giannis standist freistinguna og klári ferilinn hjá Milwaukee Stólarnir klárir og vita hvað fór úrskeiðis í leik tvö: „Við misstum hausinn“ „Einhvers staðar er skemmt epli ef niðurstaða þingsins var svona afdráttarlaus“ Aftur í Síkið: „Held að menn séu búnir að grafa þetta“ Slógu toppliðið út og komust í austur úrslitin annað árið í röð Myndaveisla: Haukar Íslandsmeistarar eftir ótrúlegan oddaleik „Að lokum var það betra liðið sem vann“ „Við ætluðum ekki að tapa þremur leikjum í röð“ Tatum með slitna hásin Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 92-91 | Haukar Íslandsmeistarar 2025 Sjáðu stemmningsmyndbandið fyrir oddaleikinn „Mætum óttalaus“ Settu nýtt met í heppni og fá velja fyrstir Meistararnir á bjargbrún og langri bið Knicks að ljúka Þriggja ára reglan heyrir sögunni til Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Uppgjörið: Ármann - Hamar 91-85 | Ármann leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Lögmálið: „Er eitthvað að því að Randle sé búinn að vera betri en Ant?“ Sjá meira