Hefur aldrei áður gerst í sögu úrslitakeppni kvennakörfunnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. mars 2016 09:30 Sandra Lind Þrastardóttir og félagar í Keflavík eru komnar í sumarfrí í mars. Vísir/Vilhelm
Keflavíkurkonum tókst ekki að tryggja sér sæti í úrslitakeppni kvenna í körfubolta í gærkvöldi því tap á heimavelli á móti Grindavík þýddi að Grindavíkurkonur höfðu tekið fjórða og síðasta sætið í úrslitakeppni Domino´s deildar kvenna í ár. Þetta eru söguleg tíðindi enda í fyrsta sinn sem Keflavíkurkonur komast ekki í úrslitakeppnina í 24 ára sögu hennar. Keflavík hafði verið með allar götur frá því að fyrsta úrslitakeppnin fór fram vorið 1993. Keflavík er það félag sem hefur oftast verið með í úrslitakeppni (23), oftast orðið Íslandsmeistari eftir úrslitakeppni (11) og oftast komist í lokaúrslit (17) en aðeins KR hefur orðið oftar í öðru sæti. Snæfell er nú það félag sem hefur verið lengst samfellt í úrslitakeppni kvenna en þetta verður sjöunda úrslitakeppnin í röð hjá Snæfellskonum. Snæfell er líka eina félagið í úrslitakeppninni í ár sem hefur orðið Íslandsmeistari á undanförnum sex árum en Snæfellskonur hafa unnið titilinn undanfarin tvö ár. Haukakonur eru með þriðja árið í röð og í tíunda sinn á ellefu árum og Grindavíkurkonur eru með annað árið í röð. Valur komst aftur í úrslitakeppnina í ár eftir eins árs fjarveru.Félög sem hafa oftast komist í úrslitakeppnina hjá konunum: 23 - Keflavík 18 - Grindavík (með 2016) 17 - KR 11 - Haukar (með 2016) 10 - ÍS 7 - Snæfell (með 2016) 4 - Valur (með 2016) 3 - Hamar 3 - Njarðvík 2 - Tindastóll 2 - Breiðablik 1 - ÍR 1 - KFÍÚrslitakeppnir kvennaliðs Keflavíkur 1993-2016:1993 Íslandsmeistari1994 Íslandsmeistari 1995 Silfur1996 Íslandsmeistari 1997 Undanúrslit1998 Íslandsmeistari 1999 Silfur2000 Íslandsmeistari 2001 Silfur 2002 Undanúrslit2003 Íslandsmeistari2004 Íslandsmeistari2005 Íslandsmeistari 2006 Silfur 2007 Silfur2008 Íslandsmeistari 2009 Undanúrslit 2010 Undanúrslit2011 Íslandsmeistari 2012 Undanúrslit2013 Íslandsmeistari 2014 Undanúrslit 2015 Silfur 2016 Ekki með
Dominos-deild kvenna Mest lesið Leik Mexíkó og Englands seinkað um klukkutíma Fótbolti „Eins og þjóðhátíðardagur og gamlárskvöld í senn“ Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Ég vissi ekki að þetta væri 1. apríl“ Fótbolti Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Fótbolti Týndur í tíu daga: Ætlaði að fara á HM en skilaði sér aldrei á staðinn Sport Ekki tapað fótboltaleik í heilt ár Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Markavélin Haaland sendi Brassana heim af HM Fótbolti Segja hegðun Paragvæ til skammar Fótbolti Margir orðnir þreyttir á Norðmönnum á HM og halda með Brasilíu Fótbolti Fleiri fréttir Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Sjá meira