Tónleikar um allt land þann 12. mars Stefán Árni Pálsson skrifar 4. mars 2016 12:15 Úlfur Úlfur, Lay Low og Mammút koma fram í Hörpu. vísir
ASÍ mun halda tónleika á fjórum mismunandi stöðum þann 12. mars og fara þeir fram í Eldborg, Edinborgarhúsinu, Hofi og Egilsbúð. Tilefnið er 100 ára afmæli ASÍ. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ en fjölskylduskemmtun verður í Hörpu frá kl. 14 um daginn þar sem Úlfur Úlfur, Páll Óskar, Hundur í Óskilum koma fram og verða veitingar í boði. Um kvöldið munu síðan eftirfarandi listamenn koma fram á tónleikunum; Mammút, Retro Stefson. Valdimar, Mannakorn, Lára Rúnars, Mugison, Ylja, Hvanndalsbræður, Agent Fresco, Emmsje Gauti, Lay Low, Bjartmar, Úlfur Úlfur, Lúðrasveit Verkalýðsins, Páll Óskar og Hundur í Óskilum. Tónlist hefur leikið stórt hlutverk í verkalýðshreyfingunni alla tíð og tónlist verður einkennandi í afmælisfagnaði ASÍ. Nánari upplýsingar um það hvernig miðar verða afhendir eru inni á tix.is. Hér að neðan má lesa dagskrána frá ASÍ frá hverjum stað fyrir sig:Reykjavík dagur Fjölskylduskemmtun í tilefni 100 ára afmælis ASÍ hefst í Hörpu kl. 14 laugardaginn 12. mars. Boðið verður upp á tónleika með Páli Óskari og Úlfi Úlfi í Norðurljósasalnum. Auk þess setur tvíeykið magnaða, Hundur í óskilum, upp stutta leiksýningu í Kaldalóni kl. 15 og 16 þar sem farið verður yfir athyglisverða hluti úr 100 ára sögu verkalýðshreyfingarinnar. Kl. 17:30 blæs Lúðrasveit verkalýðsins svo til tónleika í Kaldalóni. ASÍ býður svo gestum Hörpunnar upp á afmælisköku, kaffi og djús í tilefni aldarafmælisins. Það er frítt inn á alla þessa viðburði og ekki þarf að ná sér í miða til að vera með á fjölskylduskemmtuninni.Reykjavík kvöld - Eldborg Frábærir listamenn koma fram til að fagna þessum tímamótum með okkur: Retro Stefson, Mannakorn, Valdimar, Hundur í óskilum, Mammút og Lúðrasveit Verkalýðsins. Kynnar verða Halldóra Geirharðsdóttir og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Aðgangur er ókeypis en miðar verða afhentir á tix.is og harpa.is og hefst afhending miða föstudaginn 4. mars kl. 12 á hádegi.Akureyrim - Hof Ljósmyndasýning og tónleikar í Hofi á Akureyri laugardaginn 12. mars kl. 20. Fram koma: Agent Fresco, Ylja, Hvanndalsbræður og Emmsje Gauti. Aðgangur er ókeypis en miðar verða afhentir á tix.is og harpa.is og hefst afhending miða föstudaginn 4. mars kl. 12 á hádegi.Ísafjörður - Edinborgarhúsið Ljósmyndasýning og tónleikar í Edinborgarhúsinu á Ísafirði laugardaginn 12. mars kl. 20. Fram koma: Mugison og Lára Rúnars. Aðgangur er ókeypis en miðar verða afhentir á tix.is og harpa.is og hefst afhending miða föstudaginn 4. mars kl. 12 á hádegi.Neskaupstaður - Egilsbúð Ljósmyndasýning og tónleikar í Egilsbúð í Neskaupstað laugardaginn 12. mars kl. 20. Fram koma: Bjartmar Guðlaugs, Lay Low og Úlfur Úlfur. Aðgangur er ókeypis en miðar verða afhentir á tix.is og harpa.is og hefst afhending miða föstudaginn 4. mars kl. 12 á hádegi. Þann 12. mars 2016 verða 100 ár liðin frá því að 20 einstaklingar frá sjö verkalýðsfélögum bundust samtökum til að efla samtakamátt sinn í baráttunni fyrir bættum kjörum og Alþýðusambandið varð til.
Mest lesið Var talin vera hommi og lögð í einelti Lífið „Við munum ekki eldast saman“ Lífið Tæpur helmingur íbúa hefur séð myndina Bíó og sjónvarp „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Tónlist Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Ógleymanlegt fermingarpils enn í uppáhaldi Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Hollywood stjörnur, þjóðarréttir og pólitík Lífið Fleiri fréttir „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Rokkþyrstir geta tekið gleði sína á ný Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið Frumsýning á Vísi: Landsliðsmaður gefur út lag með pabba sínum Taylor Swift jafnaði met Beyoncé á VMA Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest Sáu ekki fyrir sér vinsældirnar en fagna nú 36 árum Sergio Mendes höfundur Mas Que Nada látinn Gáfu tóndæmi af Barfly í beinni Aldrei séð annað eins: IceGuys seldi nítján þúsund miða Herra Hnetusmjör stoltur eftir tryllta afmælishelgi Samtalið órjúfanlegur hluti af sköpuninni Ótrúlega slakandi raftónlistarhátíð í fimmtánda skiptið Segir Marr hafa stöðvað endurkomu The Smiths Fjörutíu blaðamönnum boðið en enginn mætti Stormaði út með látum en gafst svo upp á skrifstofustarfinu Dásamar Charlie XCX þrátt fyrir orðróminn Slíðra sverðin og boða endurkomu sveitarinnar Snorri valinn á lista 20 undir 30 hjá tímaritinu IQ Valin á lista efstu tuttugu hjá Norðurlöndunum Helgi Björns með splunkunýtt tónlistarmyndband Chappell Roan biður um frið: „Konur skulda ykkur ekki skít“ Aron Can með stóra tónleika erlendis Haustinu fagnað með tónleikum á Kaffi Flóru Nýdönsk og ADHD fá hvorar tvær milljónirnar „Ég á mjög auðvelt með að standa með þessu öllu saman“ Pétur Jökull er Pj Glaze Tileinkar lagið trans fólki: „Hefur verið mikill tilfinningarússíbani“ Ingi Bauer, VÆB og Stefán Berg bjóða upp á Stemningu Sjá meira