Samkvæmt heimildum Vísis var Aldísi í desember boðið að flytja sig til í starfi og hefja störf hjá héraðssaksóknara. Hún hafnaði hins vegar boði um flutning. Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki véfengt fréttir þess efnis að Aldís standi tæpt.
Aldís var skipuð í starf yfirmanns fíkniefnadeildar í apríl 2014 en skipunin vakti nokkra athygli enda hafði hún litla reynslu af götunni og því síður af fíkniefnamálum og rannsókn þeirra.

Aldís er hins vegar reynslumikil þegar kemur að efnahagsbrotum en hún starfaði við efnahagsbrotadeild hjá ríkislögreglustjóra frá 2003 til 2008 þegar hún hóf störf hjá Deloitte. Þá var hún í fjármunadeild lögreglu frá 2008-2011 og svo starfsmaður sérstaks saksóknara frá 2011 þar til hún var skipuð yfirmaður R-2, deildar sem rannsakar fíkniefnamál og skipulagða glæpastarfsemi.
Embætti héraðssaksóknara tók til starfa um áramót en um leið var embætti sérstaks saksóknara lagt niður. Nýja embættið tekur við hlutverki þess gamla og má því segja að Aldís hafi hafnað boði um að snúa aftur á sinn heimavöll. Ólafur Þór Hauksson er yfirmaður nýja embættisins líkt og þess gamla.
Aldís sagðist í viðtali við Vísi á föstudag hafa óskað eftir fundi með innanríkisráðherra skömmu fyrir jól. Var það eftir að þrýstingur hafði verið settur á hana að færa sig um set. Hún vildi ekki upplýsa hvað fór fram á fundi með ráðherra sem fór fram á föstudaginn.
Heimildir fréttastofu herma að Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn og Jón H.B. Snorrason hafi verið andvígir því að Aldís yrði færð til í starfi.

Fram hefur komið að meirihluti fíkniefnadeildar kom athugasemdum á framfæri við ríkislögreglustjóra síðastliðið vor eftir að hafa fengið lítil viðbrögð við athugasemdum sínum hjá yfirmanni sínum, Friðriki Smára Björgvinssyni.
Í yfirlýsingu sem Friðrik Smári sendi Vísi á föstudag kom fram að tveir lögreglumenn hefðu gert athugasemdir við störf fulltrúans á þriggja vikna tímabili í mars í fyrra. Viðurkenndi hann svo í samtali við Vísi að annar þeirra hefði vissulega komið á hans fund sem fulltrúi fleiri lögreglumanna í deildinni.
Starfsmennirnir leituðu þó ekki til Aldísar með umkvörtunarefni sín. Samstarf Aldísar og lögreglufulltrúans var afar gott og ein ástæða þess að þeir treystu sér ekki til að fara með málið á hennar borð.