Sölvi hefur verið áberandi í samfélaginu seinustu ár, meðal annars fyrir ljóð sín og ýmsar aðrar uppákomur. „Ég upplifi mikið mótlæti þegar það kemur að listinni minni og fólk reynir að draga mig niður. Margir af listamönnum landsins voru svo sannfærðir um að ég væri ekki listamaður að þeir fóru í hálfgerða herferð gegn mér,“ segir Sölvi, en gefur þó lítið fyrir fólkið sem vinnur gegn honum. „Ég samdi bara ljóð um þetta, það heitir Some people og það fjallar um fólk sem er alltaf á móti öllu og dæmir alla, meira að segja sjálft sig.“

„Mér finnst auðvitað gaman að ögra fólki. Fólk er svo upptekið af því að öllum líki vel við sig að það gleymir að elska sjálft sig. Ef þú ert öðruvísi þá áttu að njóta þess, ekki gera þig straumlínulaga,“ segir Sölvi. „Fólk þarf að vera grjóthart til þess að halda sér á floti í þessum heimi.“
Það er ekki auðvelt að reyna fyrir sér í leiklistarheiminum úti í Englandi, en Sölvi ætlar að láta slag standa. Hann fer reglulega út í áheyrnarprufur og kemst yfirleitt langt og hefur landað nokkrum hlutverkum. „Hér áður fyrr var ég alltaf bara ráðinn í sömu hlutverkin. Af því ég er massaður þá var ég bara fenginn til þess að vera öryggisvörður eða eitthvað í líkingu við það. En nýlega er ég búinn að vera að reyna fyrir mér í alvöru hlutverkum og fólk er farið að sjá að ég get leikið.“
Sölvi segist þó enn halda í íslenska hreiminn þegar hann fer í prufur. „Ég get auðvitað talað með alveg hreinum enskum hreim en ég held þessum íslenska aðeins með, því það er sjarmi yfir því. Það virkaði allavega vel fyrir Björk,“ segir Sölvi hlæjandi.

Sölvi leikur sérsveitarmann sem vinnur að því að bjarga heiminum, í anda James Bond.
Sölvi byggir persónuna á eigin lífsreynslu frá því að hann bjó í Litháen. „Þá fékk maður vissulega að kynnast ýmiss konar fólki, meðal annars leigumorðingjum. Þeir fá greitt fyrir að ráða fólk af dögum. Ég byggði karakterinn í myndinni upp sem ákveðna andstæðu þeirra,“ segir Sölvi en bætir við að sú reynsla hafi verið algjört menningasjokk enda ólíklegt að það sé leigumorðingja að finna hér á landi.
Kvikmyndin, sem heitir Zone 261, var tekin upp í Svíþjóð í lok seinasta árs en Sölvi segir að eftirvinnslan verði mjög dýr enda um stórmynd að ræða. Bókin, sem kemur út samhliða, er þó tilbúin og bíður eftir að verða gefin út.
„Það eina sem gengur betur hjá mér en bókin er ferillinn hans Haffa,“ segir Sölvi en Hafþór lék meðal annars í Game of Thrones og hefur mörgum verkefnum rignt yfir hann síðan. „Ég sé um flest alla samninga fyrir hann og les þá yfir með lögfræðingi. Þetta gengur svo vel hjá honum að það er ævintýri líkast.“