Leikstjórn og framleiðsla: The Markell Brothers. Þorkell Harðarson og Örn Marinó Arnarson.
Tónlist: Mugison
Framleiðendur: Ragna Fróðadóttir og Heather Millard.
Viðmælendur: Christine Boland, David Shah og RAVAGE tvíeykið Arnold van Geuns og Clemens Rameckers.
Heimildarmyndin Trend Beacons fjallar um heim sem er mörgum framandi, heim tískunnar. Í myndinni fáum við að kynnast fjórum trend-spámönnunum, en þeirra hlutverk er að sjá fyrir hvað muni gerast í heimi hönnunar og tísku. Ekki næsta haust, nei. Þeir spá tvö ár fram í tímann.
Vinna þeirra snýst um að sjá og spá um hvað verði næsta trend, í hönnun, tísku, litum og jafnvel lifnaðarháttum. Hugmyndirnar eru svo settar í bækur sem þeir selja til stóru fyrirtækjanna og hönnuðanna, með rökstuðningi um af hverju það ætti til dæmis að veðja frekar á bláan lit en bleikan.
Bækurnar nota hönnuðirnir síðan sem innblástur fyrir næstu línu.

Myndin er frábærlega vel gerð, stiklar á stóru og snertir á mörgum þáttum tískuheimsins, líka þeim slæmu. Áhorfandinn er leiddur inn í heim innblásturs og sköpunar og fær góða innsýn í starf tískuspámannsins. Við fáum að sjá og kynnast starfi sem fáir þekkja og margir vissu ekki að væri yfirleitt til, en er þó gríðarlega mikilvægt.
Í mörgum heimildarmyndum sem fjalla um þennan heim er tilgangurinn oft að gera lítið úr honum, nú eða blása hann upp, en þeim Þorkeli og Erni tekst að fara hinn gullna milliveg.
Trend Beacons er fersk og töff heimildarmynd og það er gaman að sjá íslenska mynd sem fjallar um svona „current“ efni. Heimildarmynd sem enginn tísku-, hönnunar- eða markaðsáhugamaður má láta framhjá sér fara.
Trend Beacons verður frumsýnd í Bíó Paradís í kvöld klukkan 20. Athugið að einungis eru þessar fjórar sýningar í boði:
Fimmtudagur 12. mars klukkan 20:00.
Föstudagur 13. mars klukkan 18:00
Laugardagur 14. mars klukkan 16:00
Sunnudagur 15. mars klukkan 20:00