Ísland skartar sínu fegursta í myndbandi fjallahjólagoðsagna Stefán Ó. Jónsson skrifar 8. desember 2015 22:30 Myndbandið rataði á vefinn á föstudag og er allt hið glæsilegasta. skjáskot
Það má með sanni segja að einhver stærsta landkynning ársins hafi bæst í sarpinn á dögunum þegar myndband af fjallahjólaferð nokkurra manna rataði á netið. Myndbandið væri þó vart í frásögur færandi ef ekki væri fyrir þá sem að því standa – þá Hans Rey og Steve Peat sem hafa verið tvö af þekktustu nöfnum fjallahjólabransans undanfarin tuttugu ár og eru margverðlaunaðir hjólreiðakappar. „Þeir eru þannig séð lifandi goðsagnir eins og stundum er sagt,“ segir fjallahjólaleiðsögumaðurinn Rúnar Ómarsson sem hjólaði með þeim Rey og Peat, ásamt kvikmyndatökumanni og ljósmyndara, þvert yfir landið frá norðri til suðurs í ágúst síðastliðnum. Myndbandið rataði á vefinn á föstudag og sjá má hér að neðan.Hans Rey átti frumkvæðið að ferðinni sem Rúnar segir hafa lengi haft mikinn áhuga á því að hjóla yfir landið – „enda sé Ísland rómað úti í heimi, ekki einungis fyrir náttúrufegurð heldur einnig fyrir frábærar fjallahjólaleiðir.“ Rúnar segir að Rey hafi þó ekki viljað hjóla eftir hefðbundnum vegum heldur rótgrónum kindastígum og gönguslóðum. Hlutverk Rúnars var því ekki síst að segja þeim félögum hvar þeir mættu og hvar þeir mættu ekki hjóla. „Því það eru ákveðnar leiðir á landinu sem má bara hjóla einn dag á ári þannig að það er ekki hægt að fara hvenær sem er, hvert sem er,“ útskýrir Rúnar fyrir blaðamanni.Rúnar ÓmarssonFerð þeirra tók um sex daga og segir Rúnar þá hafa fengið alls konar veður á leiðinni – „allt frá því að vera yndislegt yfir í það að vera ógeðslegt,“ en ferðin hafi þó gengið vel fyrir sig – eins og myndbandið ber með sér. Rúnar segir að svaðilför þeirra félagi hafi vakið mikl athygli um heim allan; greinar um ferðina hafi nú birst í yfir 30 tímaritum og þá sé myndbandið farið að birtast á öllum helstu fjalla- og reiðhjólavefsíðum heims. Landkynningin er því mikil - „og áhorfið verður því án efa í tugum ef ekki hundruðum þúsunda,“ að mati Rúnars. Þetta sé þó ekki í fyrsta sinn sem slíkt myndband hafi ratað á netið frá Íslandi. „Það má þannig séð segja að Ísland sé draumalandið fyrir erlenda fjallahjólamenn en þeir setja yfirleitt fyrir sig veðrið og verðið. Það er bara eins og gengur,“ segir Rúnar.Góð umgengni skipti fjallhjólafólk lykilmáli. Nýlega var stofnað Fjallahjólasamband Íslands sem meðal annars hefur það hlutverk að fræða Íslendinga og erlenda gesti hvar má hjóla og hvar ekki. Það muni þannig koma til með að leiðbeina því fjallahjólafólki sem hingað kann að sækja eftir landkynningu þeirra Rey og Peat. Rúnar segir slíka fræðslu skipta fjallahjólafólk töluverðu máli enda leggi það mikla áherslu á að vera umhverfisvænt – „enda vill enginn skemma. Fólk er komið hingað til að njóta náttúrunnar og því þarf að fara vel með hana,“ bætir hann við. Því muni hið nýstofnaða samband leggja áherslu á að þeir sem komi fái leiðsögumann – „af því að landið er sumstaðar viðkvæmt og þess vegna höfum við unnið í því að skerpa svolítið á reglunum . Fólk haldi sig á slóðunum og hjóli ekki utan þeirra. Þá erum við jafnframt að vinna í því að gera nýja slóða á einhverjum afmörkuðum svæðum,“ segir Rúnar.
Heilsa Mest lesið Grunaður um að nauðga konu þrisvar sömu nóttina Innlent Aðalmeðferð í Súlunesmálinu frestað Innlent Miðaldaturn í Róm hrundi að hluta Erlent Íslenskir unglingar veðja næst mest í Evrópu Innlent Stíga ekki inn í Intra-málið í bili Innlent Segir Bandaríkin ekki geta ráðist inn Erlent „Væri fínt ef fullorðna fólkið myndi girða sig og setja reglur fyrir sig sjálft“ Innlent Bandarískir erindrekar hótuðu evrópskum kollegum sínum Erlent „Gætir verið pirrandi við matarborðið en það er þess virði“ Innlent Áfengisneysla „Evrópumeistara í unglingadrykkju“ dregst saman Erlent Fleiri fréttir Ekki meiðyrði hjá RÚV að lýsa yfirlýsingum Elds Smára réttilega Georgíumaður hafi kvænst Letta til þess að fá dvalarleyfi Eldur í bíl á Hellisheiði Líklegra að það gjósi nær áramótum Stíga ekki inn í Intra-málið í bili Vélfag kvartar til ESA og ræður kanónu „Væri fínt ef fullorðna fólkið myndi girða sig og setja reglur fyrir sig sjálft“ Álftin fæli bændur frá kornrækt Íslenskir unglingar veðja næst mest í Evrópu Húsnæðismálin í brennidepli og Alvotech lækkar á mörkuðum Aðalmeðferð í Súlunesmálinu frestað Viðreisn stillir upp á lista í Mosfellsbæ Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra tekur upp nýtt nafn Foreldrar langveikra barna einangruð og endi jafnvel sem öryrkjar Vilja rýmri reglur um veiðar fjögurra fuglategunda Tvö pör handtekin og afskipti höfð af tvímenningum Grunaður um að nauðga konu þrisvar sömu nóttina „Aldrei fyrirgefanlegt þegar það er farið svona með opinbert fé“ Hjóluðu 1300 kílómetra meðfram Dóná með börnum sínum „Gætir verið pirrandi við matarborðið en það er þess virði“ Kynlífsverkafólk í Norræna húsinu og tölvuspilandi eldri borgarar Moskítóflugan lifði kuldakastið af „Þorsti í auglýsingafé er talsverður hjá Ríkisútvarpinu“ Hætta á að ákveðnir staðir þrífist ekki Velunnarar hefja söfnun fyrir ekkju Hjörleifs Þúsundir hafi orðið af milljónum Hundrað þúsund færri kindur í dag en fyrir tíu árum Dökk mynd í byggingariðnaði, umsvif RÚV og fækkun fjár Losun gróðurhúsalofttegunda jókst í Reykjavík Húsnæðismálin og staða Ríkisútvarpsins Sjá meira