„Ég spila að ég held tuttugu og þrisvar sinnum þessa fimm daga, sem eru rúmlega eitt þúsund mínútur. Ég elska þetta, og rúmlega það,“ útskýrir Vignir og Hrafnkell státar af tuttugu giggum. „Það er gaman að segja frá því að ég spila oftar í ár en í fyrra, en á sama tíma spila ég með færri böndum,“ segir Hrafnkell.
Líkt og áður segir, var Hrafnkell „kóngurinn“ í fyrra og spilaði með flestum böndum, og segir hann það hafa verið létta geggjun. „Ég prófaði að gera þetta svona í fyrsta skipti í fyrra og endaði á að taka mér viku frí í vinnnunni eftir Airwaves,“ segir hann og hlær. „Aðalstressið er í rauninni að róta öllu og koma sér á milli staða á réttum tíma. Í fyrra var þetta þannig að kærastan mín var með mér og hún lagði bílnum meðan ég hljóp inn á tónleikastaðinn og setti upp trommusettið. Á einhverjum tímapunkti var þetta líka bara orðið þannig að hún henti upp trommusettinu ef því var að skipta.“
Segir Hrafnkell einkenna svona hamagang að á augnablikinu þegar tónleikarnir hefjist, þá upplifi hann sínar frímínútur. „Svo þegar maður byrjar á lokalaginu, þá veit maður að maður er orðinn of seinn á næsta gigg.“
Spenntastir fyrir Fríkirkjunni
Vignir segist spenntur fyrir þessari áskorun sem fylgi því að vera „kóngurinn“ í ár. „Ég á reyndar ekkert að vera að þessu, ég er kvíðasjúklingur, greindur með ofsakvíða fyrir tveimur mánuðum. En þetta er bara svo ógeðslega gaman.“ Munu þeir félagarnir spila heilmikið saman, en burtséð frá að stíga á svið saman í þeirra eigin hljómsveit, Agent Fresco, munu þeir spila saman með Emmsjé Gauta og Úlfi Úlfi. Aðspurðir um hvort eitthvert eitt gigg kitli þá fremur en annað eru þeir sammála um að þeir hlakki sérstaklega til tónleika Agent Fresco í Fríkirkjunni fimmtudaginn 5. nóvember.
„Sjálfur er ég mjög spenntur fyrir því, ég er að fara að gifta mig þar næsta sumar svo ég mun mæla hana svolítið út, hvar best sé að standa og svoleiðis. Ég er reyndar í heildina mjög spenntur fyrir Agent Fresco-giggunum og svo því að spila með Kött Grá Pjé. Það hef ég ekki gert áður á Airwaves,“ segir Vignir. „Já, ég er spenntastur fyrir þeim tónleikum. Við verðum órafmagnaðir þar, með strengjasveit og munum taka þetta upp á eitthvert annað level. Og svo verður sunnudagurinn ansi hress líka,“ skýtur Hrafnkell að og á þar við lokakvöld hátíðarinnar, en þar munu þeir félagar troða saman upp á sviðinu í Vodafone-höllinni með Emmsjé Gauta, Úlfi Úlfi og Agent Fresco.
Fyrir upptekna tónlistarmenn eins og þá Hrafnkel og Vigni er hátíðin töluvert önnur en fyrir þá sem mæta á hana sem gestir. „Ég fer inn í þetta þannig að ég býst ekki við að ná neinum atriðum. Það er þá bara plús ef það næst. Sjálfur hef ég aldrei verið gestur á hátíðinni, enda hef ég spilað þar síðan ég var átján ára gamall, án pásu,“ útskýrir Hrafnkell og bætir við að ekki sé pláss í dagskránni fyrir eitthvert djamm og djús, ólíkt því sem eflaust margir geri ráð fyrir í slíkri rokk og ról paradís sem líf tónlistarmanna sé. „Það gengur einfaldlega ekki upp að gera það svoleiðis,“ segir hann að lokum, þrælspenntur fyrir komandi átökum.