Spilar tuttugu og þrisvar sinnum á fimm dögum á Airwaves Guðrún Ansnes skrifar 30. október 2015 08:00 Vignir steypti Hrafnkeli af kolli sem kóngurinn þetta árið. Þeir segjast þó ekki keppast um titilinn. vísir/Vilhelm „
Ég er kóngurinn í ár, búinn að steypa Kela af stalli,“ segir Vignir Rafn Hilmarsson bassaleikari og skellir uppúr. Þar á hann við Hrafnkel Örn Guðjónsson trommara, en báðir munu fara hamförum á Airwaves-hátíðinni í ár. Er þetta sautjánda árið í röð sem blásið verður til þessa tónlistarviðburðar, sem fyrir löngu hefur fest sig í sessi meðal íslenskra tónlistar unnenda, sem og erlendra. „Ég spila að ég held tuttugu og þrisvar sinnum þessa fimm daga, sem eru rúmlega eitt þúsund mínútur. Ég elska þetta, og rúmlega það,“ útskýrir Vignir og Hrafnkell státar af tuttugu giggum. „Það er gaman að segja frá því að ég spila oftar í ár en í fyrra, en á sama tíma spila ég með færri böndum,“ segir Hrafnkell. Líkt og áður segir, var Hrafnkell „kóngurinn“ í fyrra og spilaði með flestum böndum, og segir hann það hafa verið létta geggjun. „Ég prófaði að gera þetta svona í fyrsta skipti í fyrra og endaði á að taka mér viku frí í vinnnunni eftir Airwaves,“ segir hann og hlær. „Aðalstressið er í rauninni að róta öllu og koma sér á milli staða á réttum tíma. Í fyrra var þetta þannig að kærastan mín var með mér og hún lagði bílnum meðan ég hljóp inn á tónleikastaðinn og setti upp trommusettið. Á einhverjum tímapunkti var þetta líka bara orðið þannig að hún henti upp trommusettinu ef því var að skipta.“ Segir Hrafnkell einkenna svona hamagang að á augnablikinu þegar tónleikarnir hefjist, þá upplifi hann sínar frímínútur. „Svo þegar maður byrjar á lokalaginu, þá veit maður að maður er orðinn of seinn á næsta gigg.“Spenntastir fyrir Fríkirkjunni Vignir segist spenntur fyrir þessari áskorun sem fylgi því að vera „kóngurinn“ í ár. „Ég á reyndar ekkert að vera að þessu, ég er kvíðasjúklingur, greindur með ofsakvíða fyrir tveimur mánuðum. En þetta er bara svo ógeðslega gaman.“ Munu þeir félagarnir spila heilmikið saman, en burtséð frá að stíga á svið saman í þeirra eigin hljómsveit, Agent Fresco, munu þeir spila saman með Emmsjé Gauta og Úlfi Úlfi. Aðspurðir um hvort eitthvert eitt gigg kitli þá fremur en annað eru þeir sammála um að þeir hlakki sérstaklega til tónleika Agent Fresco í Fríkirkjunni fimmtudaginn 5. nóvember. „Sjálfur er ég mjög spenntur fyrir því, ég er að fara að gifta mig þar næsta sumar svo ég mun mæla hana svolítið út, hvar best sé að standa og svoleiðis. Ég er reyndar í heildina mjög spenntur fyrir Agent Fresco-giggunum og svo því að spila með Kött Grá Pjé. Það hef ég ekki gert áður á Airwaves,“ segir Vignir. „Já, ég er spenntastur fyrir þeim tónleikum. Við verðum órafmagnaðir þar, með strengjasveit og munum taka þetta upp á eitthvert annað level. Og svo verður sunnudagurinn ansi hress líka,“ skýtur Hrafnkell að og á þar við lokakvöld hátíðarinnar, en þar munu þeir félagar troða saman upp á sviðinu í Vodafone-höllinni með Emmsjé Gauta, Úlfi Úlfi og Agent Fresco. Fyrir upptekna tónlistarmenn eins og þá Hrafnkel og Vigni er hátíðin töluvert önnur en fyrir þá sem mæta á hana sem gestir. „Ég fer inn í þetta þannig að ég býst ekki við að ná neinum atriðum. Það er þá bara plús ef það næst. Sjálfur hef ég aldrei verið gestur á hátíðinni, enda hef ég spilað þar síðan ég var átján ára gamall, án pásu,“ útskýrir Hrafnkell og bætir við að ekki sé pláss í dagskránni fyrir eitthvert djamm og djús, ólíkt því sem eflaust margir geri ráð fyrir í slíkri rokk og ról paradís sem líf tónlistarmanna sé. „Það gengur einfaldlega ekki upp að gera það svoleiðis,“ segir hann að lokum, þrælspenntur fyrir komandi átökum.
Airwaves Tengdar fréttir Rokk í Hafnarfirði Ölstofa Hafnarfjarðar verður með viðamikla rokktónleika á planinu í Flatahrauni 5 í kvöld sem hefjast kl. 18:00. 7. ágúst 2015 16:00 Hot Chip á Iceland Airwaves Verða fjórðu tónleikar sveitarinnar á Íslandi. 19. ágúst 2015 12:31 Stund sem aldrei verður endursköpuð Arnór Dan, söngvari Agent Fresco, segist hafa fengið sjokk á sviðinu þegar eitt lag var eftir, þar sem hann féll í algeran trans á sviðinu og rankaði ekki við sér fyrr en á lokametrunum. „Stund sem ég gleymi aldrei.“ 5. október 2015 10:30 Dagskrá Iceland Airwaves klár Tilkynnt var um síðustu listamennina sem koma fram á hátíðinni í dag. 25. ágúst 2015 13:25 Frumsýnt á Vísi: Myndband við lagið Wait For Me með Agent Fresco Hljómsveitin Agent Fresco sendir frá sér plötuna, Destrier þann 7. ágúst næstkomandi. 24. júlí 2015 14:00 Agent Fresco í fyrsta sinn til Bandaríkjanna Nýjasta plata sveitarinnar, Destrier, fór í fyrsta sæti yfir söluhæstu plötur vikunnar. 14. ágúst 2015 08:00 Um 240 tónlistarmenn koma fram á Iceland Airwaves Dagskrá tónlistarhátíðarinnar var kynnt í dag. 25. september 2015 17:22 Vígaleg vegglistaverk spretta upp um borgina Víða um borgina spretta upp litrík vegglistaverk sem eru hluti af samstarfsverkefni Iceland Airwaves og Urban Nation Berlín. 30. september 2015 09:00 Nýja plata Agent Fresco fær frábærar viðtökur erlendis Hljómsveitin hélt öðruvísi útgáfupartí í Bíói Paradís. Stefnan er sett á Evróputúr í lok ársins. 11. ágúst 2015 09:30 Mest lesið Kynntust í Keflavík og gista saman í villu í Kenýa Ferðalög Gefur endurkomu undir fótinn Lífið Embla Wigum flytur aftur á Klakann Lífið Bak við tjöld Víkurinnar: Háskalegar aðstæður og hættulegur ferðamaður á hjara veraldar Bíó og sjónvarp Steikt að sjá barn með rottu í bandi í París Lífið Skömminni skilað Gagnrýni Guðrún er með sólarsellurafmagn í sautján fermetra húsi sínu Lífið „Léleg“ hönnun gervigreindar reyndist mannanna verk Menning Helgi Ómars útskrifaður sem heilsumarkþjálfi Lífið Maður geti þurft að díla við „konu sem er á túr“ og í vondu skapi Lífið Fleiri fréttir Maður geti þurft að díla við „konu sem er á túr“ og í vondu skapi Gefur endurkomu undir fótinn Labbar sextán þúsund skref á dag í París Guðrún er með sólarsellurafmagn í sautján fermetra húsi sínu Embla Wigum flytur aftur á Klakann Helgi Ómars útskrifaður sem heilsumarkþjálfi Stelur af Sigga Bond: „Þá ætla ég að tala við Hannes Hólmstein“ „Finn ekki fyrir pressu“ Þórunn Elísabet og Jón selja í Vesturbænum Götulistamaðurinn Jójó látinn Hvernig er best að byggja upp traust? Þótti ekki viðeigandi að gefa fagaðilum gervitittlinga „Guð skapaði þig og hann gerir ekki mistök“ „Finnst við oft gleyma þeim sem geta ekki tjáð sig“ Dreymir um að finna fólkið sem gaf hana frá sér Krúttlegustu áheyrnarprufur ársins Kossaflens á klúbbnum Sjóðheitar skvísur í hvolpajóga brutu næstum Internetið Sárþjáður Eyfi sendur með sjúkrabíl og skellt í aðgerð „Hálfur áratugur með þér my love“ Herra stal hundi Sunnevu og tók með í Bannað að hlæja Enn veldur Britney áhyggjum „Ég er tilbúin að vera þetta ofurpar sem okkur er ætlað að verða“ Trúlofuðu sig í laxveiði Höfundur hinna erótísku Rutshire Chronicles-bóka látinn Áróðursvélar Netanjahús séu á fullu blasti í Eurovision Stjörnulífið: „Mesta milf Íslands“ „Ég hef tapað vinum á því að eiga peninga“ Sonur Tinu Turner látinn Óraunverulegt að kaupa íbúð í miðborg London Sjá meira
Rokk í Hafnarfirði Ölstofa Hafnarfjarðar verður með viðamikla rokktónleika á planinu í Flatahrauni 5 í kvöld sem hefjast kl. 18:00. 7. ágúst 2015 16:00
Stund sem aldrei verður endursköpuð Arnór Dan, söngvari Agent Fresco, segist hafa fengið sjokk á sviðinu þegar eitt lag var eftir, þar sem hann féll í algeran trans á sviðinu og rankaði ekki við sér fyrr en á lokametrunum. „Stund sem ég gleymi aldrei.“ 5. október 2015 10:30
Dagskrá Iceland Airwaves klár Tilkynnt var um síðustu listamennina sem koma fram á hátíðinni í dag. 25. ágúst 2015 13:25
Frumsýnt á Vísi: Myndband við lagið Wait For Me með Agent Fresco Hljómsveitin Agent Fresco sendir frá sér plötuna, Destrier þann 7. ágúst næstkomandi. 24. júlí 2015 14:00
Agent Fresco í fyrsta sinn til Bandaríkjanna Nýjasta plata sveitarinnar, Destrier, fór í fyrsta sæti yfir söluhæstu plötur vikunnar. 14. ágúst 2015 08:00
Um 240 tónlistarmenn koma fram á Iceland Airwaves Dagskrá tónlistarhátíðarinnar var kynnt í dag. 25. september 2015 17:22
Vígaleg vegglistaverk spretta upp um borgina Víða um borgina spretta upp litrík vegglistaverk sem eru hluti af samstarfsverkefni Iceland Airwaves og Urban Nation Berlín. 30. september 2015 09:00
Nýja plata Agent Fresco fær frábærar viðtökur erlendis Hljómsveitin hélt öðruvísi útgáfupartí í Bíói Paradís. Stefnan er sett á Evróputúr í lok ársins. 11. ágúst 2015 09:30
Bak við tjöld Víkurinnar: Háskalegar aðstæður og hættulegur ferðamaður á hjara veraldar Bíó og sjónvarp
Bak við tjöld Víkurinnar: Háskalegar aðstæður og hættulegur ferðamaður á hjara veraldar Bíó og sjónvarp