Næstum því þrennudagurinn mikli hjá systrunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. október 2015 12:30 Helena Sverrisdóttir og Guðbjörg Sverrisdóttir þegar þær mættust í Lengjubikarnum. Vísir/Anton
Laugardagurinn 24. október 2015 var næstum því sögulegur dagur hjá einni fjölskyldu þegar litlu munaði að systurnar Helena og Guðbjörg Sverrisdætur væru báðar með þrennu í Domnino´s deild kvenna. Helena Sverrisdóttir, spilandi þjálfari Hauka, var með þrennu í 88-74 sigur Haukanna í Keflavík og varð þar með fyrsti leikmaður Domino´s deild kvenna í vetur sem nær þrefaldri tvennu. Helena var með 17 stig, 17 fráköst og 13 stoðsendingar á þeim 36 mínútum rúmu sem hún spilaði í leiknum. Guðbjörg Sverrisdóttir, yngri systir hennar, leiddi sitt lið, Val, til sigurs á móti Hamar á sama tíma á Hlíðarenda. Valur vann leikinn 87-80 og Guðbjörg var með 24 stig, 10 stolna bolta, 8 fráköst og 8 stoðsendingar. Hana vantaði því annaðhvort bara tvö fráköst eða tvær stoðsendingar til að ná þrennunni. Þetta er annað skiptið sem Guðbjörg er bara tveimur fráköstum frá þrennunni en hún var með 10 stig, 10 stoðsendingar og 8 fráköst í sigri á Keflavík í fyrstu umferðinni. Helena hefur verið með svaka stig-frákasta tvennur í fyrstu leikjum sínum en hafði mest gefið 8 stoðsendingar fyrir leikinn á laugardaginn. Helena er með 28,0 stig, 17,0 fráköst, 8,3 stoðsendingar og 4,3 stolna bolta að meðaltali í fyrstu þremur leikjum Hauka í Domino´s deild kvenna á þessu tímabili. Litla systir er aftur á móti með 15,7 stig, 6,7 fráköst, 7,7 stoðsendingar og 4,0 stolna bolta að meðaltali í fyrstu þremur leikjum Vals í Domino´s deild kvenna á þessu tímabili. Það má búast við því að þessar öflugu körfuboltasystur verði áfram að gæla við þrennurnar í vetur og hver veit nema að þær nái báðar þrennum á sama deginum.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira