Stórleikur í Sláturhúsinu og Körfuboltakvöld í beinni Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. október 2015 12:00 Dominos-Körfuboltakvöld fór af stað með miklum látum á föstudagskvöldið. vísir/vilhelm
Önnur umferð Dominos-deildar karla í körfubolta lýkur í kvöld með tveimur leikjum. Íslandsmeistarar KR, sem töpuðu óvænt gegn Stjörnunni í fyrstu umferð, taka á móti Þór frá Þorlákshöfn á heimavelli og í TM-höllinni í Keflavík fá heimamenn Hauka í heimsókn. Báðir leikirnir verða í beinni textalýsingu á Vísi, en viðureign Keflavíkur og Hauka er einnig sjónvarpsleikur umferðarinnar og verður því í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD. Klukkan 22.00 er svo komið að öðrum þætti Dominos-Körfuboltakvölds á Stöð 2 Sport HD þar sem Kjartan Atli Kjartansson gerir upp aðra umferðina með sérfræðingum sínum. Þátturinn vakti mikla lukku á föstudagskvöldið þar sem Fannar Ólafsson og Jón Halldór Eðvaldsson fóru á kostum. Um fátt annað var rætt á Twitter það kvöldið.Það sem Íslendingar töluðu um í dag: dominos365 (37,1%) voiceisl (24,3%) korfubolti (12,9%) fotboltinet (12,9%) mufc (12,9%) — Íslendingur (@IcelandicRobot) October 17, 2015 Keflavík og Haukar unnu bæði sína leiki í fyrstu umferðinni. Keflvíkingar sóttu góðan sigur í Þorlákshöfn þar sem þeir skoruðu yfir 100 stig á Þórsara en Haukar lögðu Snæfell heima. Þar var Kári Jónsson nálægt þrennu sem hann náði ekki og fékk Ívar Ásgrímsson, þjálfari Hauka, að heyra það frá Fannari Ólafssyni fyrir að taka strákinn út af. Einnig verður farið yfir aðra umferð Dominos-deildar kvenna í kvöld þar sem Bryndís Guðmundsdóttir byrjaði fyrsta leik sinn með Snæfelli á því að skora flautukörfu fyrir sigri á Stjörnunnni. Stöð 2 Sport sýnir leik beint í hverri umferð í Dominos-deildum karla- og kvenna og Dominos-Körfuboltakvöld er svo alltaf á dagskrá eftir hverja umferð hjá körlunum. Hægt er að næla sér í Sportpakka 365 með því að smella hér.Fyrsti þáttur Dominos-Körfuboltakvölds í heild sinni:
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Körfuboltakvöld: Boltavigtun | Myndband Kjartan Atli Kjartansson, stjórnandi Domino's Körfuboltakvölds, brá á það ráð vigta keppnisboltann sem er notaður í deildinni í fyrsta uppgjörsþætti vetrarins. 18. október 2015 08:00 Körfuboltakvöld: Fannar skammar | Myndband Fannar Ólafsson lætur gamminn geysa. 17. október 2015 22:30 Körfuboltakvöld: #þrennuvaktin | Myndband Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson náði fyrstu þrennu vetrarins þegar Grindavík vann eins stigs sigur, 84-85, á FSu í fyrstu umferð Domino's deildarinnar. 18. október 2015 06:00 Körfuboltakvöld: Framlenging | Myndband Nýr dagskrárliður var kynntur til sögunnar í Domino's Körfuboltakvöldi á föstudaginn. 18. október 2015 10:00 Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Grindavík - Njarðvík | Stórslagur á Suðurnesjunum Körfubolti Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Valur - Ármann | Halda Valsarar sigurgöngunni áfram? Körfubolti Fleiri fréttir Grindavík - Njarðvík | Stórslagur á Suðurnesjunum Valur - Ármann | Halda Valsarar sigurgöngunni áfram? Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Sjá meira
Körfuboltakvöld: Boltavigtun | Myndband Kjartan Atli Kjartansson, stjórnandi Domino's Körfuboltakvölds, brá á það ráð vigta keppnisboltann sem er notaður í deildinni í fyrsta uppgjörsþætti vetrarins. 18. október 2015 08:00
Körfuboltakvöld: Fannar skammar | Myndband Fannar Ólafsson lætur gamminn geysa. 17. október 2015 22:30
Körfuboltakvöld: #þrennuvaktin | Myndband Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson náði fyrstu þrennu vetrarins þegar Grindavík vann eins stigs sigur, 84-85, á FSu í fyrstu umferð Domino's deildarinnar. 18. október 2015 06:00
Körfuboltakvöld: Framlenging | Myndband Nýr dagskrárliður var kynntur til sögunnar í Domino's Körfuboltakvöldi á föstudaginn. 18. október 2015 10:00