Keilismaðurinn Axel Bóasson verður meðal 22 keppenda á lokaúrtökumótinu fyrir Nordic Golf atvinnumótaröðina sem hefst í Danmörku á morgun en þetta kemur fram á heimasíðu Golfsambandsins.
Axel tryggði sér sætið með því að ná þriðja til fjórða sæti á fyrsta stiginu á mótaröðinni en það mót fór fram á Skjoldenæsholm vellinum í Danmörku alveg eins og lokamótið.
Axel átti frábæran fyrri keppnisdag þar sem hann lék á 67 höggum eða fimm höggum undir pari. Hann deildi efsta sætinu fyrir seinni daginn.
Axel lék seinni daginn á 75 höggum eða þremur höggum yfir pari en það kom þó ekki í veg fyrir að hann datt neðar en í þriðja sætið.
Axel fékk sex fugla á fyrri hringnum og fimm fugla á seinni deginum. Það voru hinsvegar sex skollar og einn skrambi sem fóru með hann á seinni 18 holunum.
Alls komust 22 efstu áfram á lokaúrtökumótið sem hefst á morgun, fimmtudag, og fer það fram á þessum sama velli, Skjoldenæsholm vellinum í Danmörku. Ólafur Björn Loftsson úr GKG verður á meðal keppenda og það verður fróðlegt að sjá hvernig gengur hjá þessum flottu íslensku kylfingum.
Axel Bóasson varð í 2. sæti á Íslandsmótinu í sumar og Ólafur Björn tók þá þriðja sætið en Íslandsmeistari varð Þórður Rafn Gissurarson á metskori eða tólf höggum undir pari.
Alls voru fimm mót á fyrra stigi úrtökumótsins fyrir Nordic League atvinnumótaröðina. Mótaröðin er í hópi atvinnumótaraða sem teljast vera þriðju sterkustu atvinnumannadeildir Evrópu. Mótaröðin er samvinnuverkefni danska-, sænska- og norska golfsambandsins.
Axel komst inn á lokaúrtökumót Nordic League
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið








Lárus Orri stýrir ÍA út tímabilið
Íslenski boltinn

Reif Sæunni niður á hárinu
Íslenski boltinn

Lárus sagði leikmenn ÍA hætta og stjórnendur sofa á verðinum
Íslenski boltinn