Jakob: Þurfum bara að gíra okkur upp fyrir Spánverjana Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. september 2015 14:30 Jakob í leiknum gegn Serbíu í gær. Vísir/Valli
Jakob Örn Sigurðarson og félagar í íslenska körfuboltalandsliðinu töpuðu með 29 stigum á móti Serbíu í þriðja leik sínum á Evrópumótinu í Berlín í gær en það er stutt stórra högga á milli því liðið mætir Spánverjum í kvöld. „Þetta er eitt af topp þremur liðunum í mótinu og þetta var erfitt í seinni hálfleik. Mér fannst við vera mjög flottir í fyrri hálfleik," sagði Jakob eftir leikinn við Serbíu í gær. Íslenska liðið var tíu stigum undir eftir ágætan fyrri hálfleik en Serbarnir keyrðu yfir íslenska liðið í lokaleikhlutanum. „Þetta hefði jafnvel átt að vera jafn leikur í hálfleik af því að mér fannst við fá svo galopin skot sem við hittum ekki alveg nógu vel úr," sagði Jakob. „Fyrri hálfleikurinn var mjög flottur varnarlega og það var þvílík barátta í liðinu. Sóknin var líka mjög góð hvað það varðar að boltinn fór hratt á milli manna og það var gott flæði," sagði Jakob. Jakob skoraði sex stig í leiknum og var einnig með sex fráköst. Hann var mjög áræðinn í sókninni en skotin fyrir utan þriggja stiga línuna duttu ekki hjá honum. „Mér fannst við aðallega missa þetta í fjórða leikhlutanum. Þetta var í kringum 15 til 20 stig fram í fjórða og svo fór þetta upp í 30 stigin," sagði Jakob. Íslenska liðið á enn eftir tvo leiki á mótinu og sá fyrri er á móti Spánverjum í kvöld. „Við vissum að þetta yrði erfitt og mér fannst við gefa allt í þetta. Við getum verið sáttir við það. Núna þurfum við bara að gíra okkur upp fyrir Spánverjana á morgun," sagði Jakob sem segir íslensku strákana vera tilbúna í að mæta öðru mjög sterku liði. „Það er annað próf fyrir okkur á móti öðru stórliði með fullt af hrikalega góðum leikmönnum. Það verður gaman að prófa sig á móti þeim," sagði Jakob.
EM 2015 í Berlín Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Enski boltinn Ferguson saknar fótboltans Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira