„Þetta var mjög góður hringur, ég var slakur í gær og ég var harðákveðinn í að gera betur í dag,“ sagði Þórður Rafn Gissurarson, kylfingur úr Golfklúbbi Reykjavíkur, sáttur við blaðamann eftir að hafa leikið á sex höggum undir pari á Íslandsmótinu í golfi í dag.
„Ég lenti nokkrum sinnum í því að eiga eftir erfið pútt fyrir pari en ég náði alltaf að setja niður púttin og halda áfram þessu tempói sem var í spilamennskunni allan hringinn.“
Þórður jafnaði vallarmetið af hvítum teig í dag en hann var hæstánægður að hafa náð því.
„Það er mjög gott, ég vissi af því og hver ætti það. Maggi Lár (innsk. blm. Magnús Lárusson, kylfingur úr GJÓ), félagi minn, sem átti metið einn sat í stúkunni þegar síðasta púttið datt. Það var gaman að sjá viðbrögðin hans.“
Þrátt fyrir spilamennskuna í dag var Þórður hógvær í svörum og minnti á að enn væru átján holur eftir.
„Það eru átján holur eftir, ég verð bara að halda áfram á mínu striki og þetta er fljótt að breytast. Þeir geta skyndilega sótt að manni á sama tíma og maður getur misst taktinn á sömu holu svo ég verð að vera tilbúinn.“
Þórður: Var harðákveðinn í að gera betur í dag
Kristinn Páll Teitsson skrifar

Mest lesið





„Að lokum var það betra liðið sem vann“
Körfubolti


Tatum með slitna hásin
Körfubolti

Einn besti leikmaður KR frá næsta mánuðinn hið minnsta
Íslenski boltinn

Man City sagt hafa lagt fram „mega“ tilboð í Wirtz
Enski boltinn
