Kristján segir niðurstöðuna mjög afdráttarlausa og metur framhald málsins þannig að nú taki gerðardómur við deilunni. Hann segir það koma til greina að fá erlent vinnuafl til starfa á Landspítalann, þar sem 258 hjúkrunarfræðingar hafa sagt starfi sínu lausu.
„Já, það kemur alveg til greina,“ segir Kristján. „Við erum með erlent fólk við störf í heilbrigðiskerfinu og leitum allra leiða, ef svo færi að þetta færi á versta veg. Það er eitt af þeim atriðum sem við höfum rætt við stjórnendur spítalans og hér innan ráðuneytisins.“
Mikil óánægja ríkt með samninginn
Samningurinn var undirritaður þann 23. júní síðastliðinn og var í samræmi við aðra samninga sem gerðir voru á almenna markaðnum. Hann var í dag felldur með 88 prósentum atkvæða. Almennt ríkti mikil óánægja meðal hjúkrunarfræðinga eftir að skrifað var undir kjarasamninginn.
Sjá einnig: Segir forsendur fyrir dómi gerðardóms vera brostnar

Alls greiddu 1677 atkvæði gegn því að samningurinn yrði samþykktur en 219 greiddu atkvæði með því að samningurinn yrði samþykktur, eða 11,6 prósent.
„Enginn talsmaður fyrir því að samþykkja þennan samning“
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra tekur í svipaðan streng og Kristján og segir niðurstöðuna ekki koma á óvart í ljósi umræðunnar undanfarið.
„Það var enginn talsmaður fyrir því að samþykkja þennan samning, ekki einu sinni innan félagsins eða af hálfu þeirra sem undirrituðu hann,“ segir Bjarni.
Sjá einnig: Stór hluti mun ekki draga uppsagnir til baka
Hann segir það augljóst að deilan fari fyrir gerðardóm fyrst samningar tókust ekki. Í annarri grein laganna sem stjórnvöld settu á verkfall hjúkrunarfræðinga segir að deilunni verði vísað þangað ef samningur hafi ekki verið „undirritaður“ fyrir 10. júlí. Samningur var þó undirritaður í júní, þó hann hafi ekki verið samþykktur.
„Þetta eru bara einhverjir lagalegir loftfimleikar sem menn eru komnir í ef það á að hanga á svona hlutum,“ segir Bjarni. „Það á ekki að dyljast neinum sem kynnti sér frumvarpið sem var lagt fyrir þingið hver þingviljinn var í þessu máli. Annað eru bara útúrsnúningar í mínum huga.“