Kristrún, Guðrún Ósk og Signý í Skallagrím Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. júlí 2015 22:00 Guðrún Ósk Ámundadóttir, Kristrún Sigurjónsdóttir og Signý Hermannsdóttir í Fjósinu í Borgarnesi í kvöld. Mynd/Úr einkasafni
Kristrún Sigurjónsdóttir, Guðrún Ósk Ámundadóttir og Signý Hermannsdóttir hafa ákveðið að fara allar í Skallagrím í Borgarnesi og hjálpa liðinu að komast upp úr 1. deildinni næsta vetur. Kristrún og Guðrún verða leikmenn liðsins en Signý verður hluti af þjálfarateymi liðsins sem keppir við Breiðablik, Njarðvík, Þór Akureyri og Fjölnir um sæti í Dominos-deildinni. Hver verður þjálfari kemur ekki í ljós fyrr en seinna. Allar hafa þessar þrjár spilað með landsliðinu og unnið auk þess marga stóra titla á löngum ferli. Kristrún er þrítug en Guðrún 28 ára. Þær spiluðu lengi saman í Haukum en hafa ekki verið liðsfélagar síðustu árin. Kristrún hefur spilað með Val undanfarin fjögur ár en þar áður með Hamar og Haukum þar sem hún var fyrirliði Íslandsmeistaraliðs Hauka 2009 auk þess að vinna fjóra stóra titla með Haukum frá 2005 til 2007. Guðrún Ósk Ámundadóttir kemur frá Haukum en hún er úr Borgarnesi og er því að koma heim. Guðrún var líka í KR og hefur unnið stóra titla með báðum félögum þar af bikarmeistaratitilinn fimm sinnum. Signý er búin að leggja skóna á hilluna fyrir nokkru en hún er þriðja leikjahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi. Signý vann titla með bæði KR og ÍS á sínum ferli. Þetta er hennar fyrsta reynsla sem þjálfari í meistaraflokki en hún hefur þjálfað yngri flokka hjá Val þar sem hún lék bæði fyrstu og síðustu leiki sína á ferlinum. Skallagrímur hefur ekki spilað í efstu deild í kvennakörfuboltanum í 40 ár en eftir þennan góða liðstyrk gæti sú langa bið verið á enda næsta vor.Skallagrímsliðið ætlar sér upp í efstu deild í fyrsta sinn í fjóra áratugi.Mynd/Úr einkasafni
Dominos-deild kvenna Mest lesið Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Fótbolti Segir dóttur sína hafa gert mistök með því að velja íslenska landsliðið Fótbolti Mátti ekki kaupa íbúð Babe Ruth Sport „Þetta snýst ekki bara um Sveindísi og Karólínu“ Fótbolti Hneig niður tvisvar á risamóti í golfi Golf Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Dagskráin í dag: Golf og aftur golf Sport Viðurkenndi sök og má ekki keppa í CrossFit í fjögur ár Sport Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Sjáðu þáttinn um N1 mótið: Sprungnar vindsængur, lukkuljón og Ronaldo hárgreiðsla Fótbolti Fleiri fréttir Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Sjá meira