Handbolti

Ásgeir Örn með þrjú mörk í sigri Nimes | Staða Sélestat versnar enn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ásgeir Örn gerði þrjú mörk í sigri Nimes í kvöld.
Ásgeir Örn gerði þrjú mörk í sigri Nimes í kvöld. vísir/getty
Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði þrjú mörk fyrir Nimes sem vann öruggan sigur á Istres á heimavelli, 35-27, í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Gestirnir voru fjórum mörkum yfir, 6-10, um miðjan fyrri hálfleik en Ásgeir og félagar svöruðu með 5-0 spretti og leiddu með þremur mörkum í hálfleik, 16-13.

Það dró svo enn sundur með liðunum í seinni hálfleik og Nimes vann að lokum átta marka sigur, 35-27. Með sigrinum komst Nimes upp í 9. sæti deildarinnar.

Snorri Steinn Guðjónsson, sem gengur til liðs við Nimes í sumar, gerði þrjú mörk fyrir Sélestat sem tapaði með tveggja marka mun, 31-29, fyrir Toulouse.

Sélestat er í vondum málum í 13. og næstneðsta sæti deildarinnar, átta stigum frá öruggu sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×