Handbolti

Sigurbergur frábær í stórsigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sigurbergur í leik með Haukum.
Sigurbergur í leik með Haukum. vísir/vilhelm
Sigurbergur Sveinsson var frábær í sigri Erlangen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, en liðið vann ellefu marka sigur á Lu-Friesenheim 37-26.

Erlangen hafði tögl og haldir á leiknum, en þeir leiddu meðal annars 18-13 í hálfleik.

Þeir stigu á bensíngjöfina í síðari hálfleik og unnu að lokum ellefu marka sigur, 37-26.

Ole Rahmel fór á kostum í liði Erlangen, en hann skoraði þrettán mörk. Sigurbergur kom næstur með átta.

Erlangen er í næstneðsta sæti þegar þrjár umferðir eru eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×