„Nei, ég held ekki. Það er erfitt að toppa svona endi,“ sagði Hildur en þetta var í fjórða sinn sem hún er valin besti leikmaður úrvalsdeildar kvenna (2003, 2004 og 2014).
Snæfell náði að verja Íslandsmeistaratitilinn sem liðið vann í fyrsta sinn í fyrra þrátt fyrir að hafa misst tvo sterka íslenska leikmenn; Hildi Björgu Kjartansdóttur og Guðrúnu Gróu Þorsteinsdóttur. En Snæfellingar endurheimtu Gunnhildi Gunnarsdóttur úr Haukum og Maríu Björnsdóttur úr Val og duttu í lukkupottinn með bandarískan leikmann.
„Líkt og í fyrra var ekki ljóst hversu sterkt liðið yrði en svo fengum við Gunnhildi og Maríu aftur heim. Og þegar við fórum að spila saman í haust sáum við að við vorum með lið sem gat orðið Íslandsmeistari,“ sagði Hildur sem bar mikið lof á hina bandarísku Kristen McCarthy sem var valin best erlendi leikmaður deildarinnar á lokahófinu í gær.
„Hún er frábær, ekki bara fyrir liðið heldur allt bæjarfélagið. Hún gekk um bæinn í gær og kvaddi fólkið. Hún er alveg yndisleg stelpa og þetta er í fyrsta skipti sem það er virkilega erfitt að kveðja Kana. Þótt manni þyki alltaf vænt um leikmennina tengdist hún okkur sérstökum böndum,“ sagði Hildur en nokkrir leikmenn Snæfells ætla út að heimsækja McCarthy í sumar.

„Það var alltaf planið en ég gat auðvitað ekki séð að það yrði að veruleika fyrr en það kom framhaldsskóli í Grundarfjörð og leikmenn héldust lengur í Hólminum. Svo komst liðið upp um deild og þá varð þetta að veruleika,“ sagði Hildur og bætti við:
„Ég átti mjög góð ár í KR og hef miklar taugar til liðsins en auðvitað eru tengslin meiri við Snæfell. Þessir titlar sem ég hef unnið með liðinu eru einstakir og það er magnað að svona lítið bæjarfélag eigi svona gott lið. Bæði karla- og kvennaliðin hafa verið í fremstu röð á síðustu árum.“
Hildur segir óvíst hvað taki við hjá henni: „Ég er að skoða ýmislegt og hef áhuga á mörgu. En ég verð alltaf tengd íþróttum,“ sagði Hildur sem er menntaður íþróttafræðingur. En kemur þjálfun til greina á næstu árum?
„Ég hef þjálfað yngri flokka en ég held að ég fari ekki í meistaraflokksþjálfun strax en ég hef alveg hug á því að reyna mig á þeim vettvangi,“ sagði Hildur Sigurðardóttir að lokum.