Aðalmeðferð í máli sérstaks saksóknara gegn níu fyrrverandi starfsmönnum og stjórnendum Kaupþings hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Áætlað er að aðalmeðferðin taki heilan mánuð, það er standi til 22. maí næstkomandi.
Um er að ræða eitt viðamesta mál sem sérstakur saksóknari hefur tekið til rannsóknar og ákært í. Vitnalistinn ber það með sér en yfir 50 manns verða kallaðir til sem vitni, fyrir utan þá níu sem eru ákærðir.
Umfangsmikil og þaulskipulögð brot sem vörðuðu háar fjárhæðir
Níumenningarnir eru ákærðir fyrir umfangsmikla markaðsmisnotkun sem lykilstarfsmenn Kaupþings á tímabilinu 1. nóvember 2007 til 8. október 2008. Fram kemur í ákæru að brotin séu umfangsmikil, hafi verið þaulskipulögð og staðið yfir í langan tíma. Þau hafi varðað gríðarlega háar fjárhæðir.
Ákærðu komu ýmist í veg fyrir eða hægðu á lækkun á verði hlutabréfa í Kaupþingi og juku seljanleika þeirra með kerfisbundnum og stórfelldum kaupum í krafti fjárhagslegs styrks bankans. Um 40% viðskipta með bréf Kaupþings í Kauphöll Íslands á þessu tímabili hafi verið sýndarviðskipti eins og segir í ákærunni.
Einnig lagði Kaupþing erlendum félögum til háar upphæðir til að kaupa hluti í bankanum sem voru í raun að fullu fjármögnuð af bankanum sjálfum. Viðskiptin byggðust á blekkingum og sýndarmennsku.
Ákæra var gefin út vorið 2013 en þeir sem ákærðir eru eftirfarandi:
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings
Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður bankans
Ingólfur Helgason, fyrrverandi forstjóri Kaupþings á Íslandi
Einar Pálmi Sigmundsson, fyrrverandi forstöðumaður eigin viðskipta í bankanum
Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg
Bjarki H. Diego, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Kaupþings
Birnir Sær Björnsson, fyrrverandi verðbréfasali eigin viðskipta í Kaupþingi
Pétur Kristinn Guðmarsson, fyrrverandi verðbréfasali eigin viðskipta í Kaupþingi
Björk Þórarinsdóttir sem sat í lánanefnd Kaupþings og starfaði á fyrirtækjasviði
Yfir 50 manns á vitnalista í markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings

Tengdar fréttir

Markaðsmiðsnotkunarmál hjá Kaupþingi talið eitt það viðamesta
Fyrirtaka í máli sérstaks saksóknara gegn níu fyrrum framámönnum i Kaupþingi fór fram í Hérðasdómi Reykjavíkur í dag.

Hreiðar Már og Sigurður fara fram á frávísun
Saksóknari sagði verjendur ákærðu vera að tefja málið.