McCarthy og Ingi Þór best í seinni hlutanum | Snæfell á þrjár í úrvalsliðinu Tómas Þór Þórðarson skrifar 7. apríl 2015 12:17 Kristin McCarthy hefur verið frábær í vetur. vísir/vilhelm
Kristin Denise McCarthy, leikmaður Snæfells, var kjörinn besti leikmaður seinni hluta Dominos-deildar kvenna sem gerður var upp í íþróttamiðstöðinni í Laugardalnum í dag. McCarthy skoraði 27,1 stig að meðaltali í leik og tók að meðaltali 13,1 frákast fyrir Snæfell sem varð deildarmeistari, en liðið er jafnframt ríkjandi Íslandsmeistari. Snæfell átti tvær til viðbótar í úrvalsliði seinni hlutans; leikstjórnandann Hildi Sigurðardóttur og Gunnhildi Gunnarsdóttur sem spilað hefur frábærlega á tímabilinu. Snæfell vann öruggan sigur í deildinni, en það lauk keppni með 50 stig eftir 25 sigra og aðeins þrjú töp. Keflavík varð í öðru sæti með 44 stig. Sara Rún Hinriksdóttir úr Keflavík og Ragna Margrét Brynjarsdóttir úr Val eru einnig í úrvalsliðinu en besti þjálfari seinni hlutans var kjörinn Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells. Jóhanna Björk Sveinsdóttir úr Breiðabliki er dugnaðarforkur seinni hlutans og Sigmundur Már Herbertsson var kjörinn besti dómarinn af þjálfurum og fyrirliðum deildarinnar. Úrslitakeppnin í Dominos-deild kvenna hefst á morgun þegar Snæfell tekur á móti Grindavík og Keflavík fær Hauka í heimsókn. Vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslitarimmuna.Úrvalslið seinni hluta Dominos-deildar kvenna: Hildur Sigurðardóttir, Snæfelli Gunnhildur Gunnarsdóttir, Snæfelli Kristin McCarthy, Snæfelli Sara Rún Hinriksdóttir, Keflavík Ragna Margrét Brynjarsdóttir, ValBesti þjálfarinn: Ingi Þór Steinþórsson, SnæfelliDugnaðarforkurinn: Jóhanna Björk Sveinsdóttir, BreiðablikiBesti dómarinn: Sigmundur Már HerbertssonBesti leikmaðurinn: Kristin McCarthy, Snæfelli
Dominos-deild kvenna Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu Sjá meira