Keflavíkurkonur unnu stórsigur á Haukum í fyrsta leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. apríl 2015 20:40 Carmen Tyson-Thomas var öflug í kvöld. Vísir/Vilhelm
Keflavíkurkonur byrja úrslitakeppnina af miklum krafti en liðið er komið í 1-0 í undanúrslitaeinvígi sínu á móti Haukum eftir 31 stigs sigur í kvöld, 82-51. Keflavíkurliðið var með mikla yfirburði í kvöld og Haukakonur þurfa heldur betur að taka til hjá sér ef þær ætla ekki að láta sópa sér í sumarfrí í ár. Carmen Tyson-Thomas er búin að ná sér af rifsbeinsbrotinu og var flott í kvöld með 33 stig og 14 fráköst. Sara Rún Hinriksdóttir var stigahæst hjá íslensku stelpunum í liðinu. Keflavíkurliðið tókst einnig að halda Lele Hardy í aðeins fimmtán stigum og sex fráköstum en Lele var búin að vera með tröllatvennu (yfir tuttugu í stigum og fráköstum) í níu leikjum í röð. Lele meiddist auk þess í leiknum og var borin af velli sem eru enn verri fréttir fyrir Hafnarfjarðarliðið. Keflavíkurkonur byrjuðu af miklum krafti og komust í 6-0 og 12-3 en það munaði fimm stigum eftir fyrsta leikhlutann, 18-13. Keflvíkingurinn Carmen Tyson-Thomas var með 8 stig og 5 fráköst í fyrsta leikhlutanum en Lele Hardy var með 4 stig og 2 fráköst. Keflavíkurliðið tók síðan öll völd í öðrum leikhlutanum sem liðið vann 25-13 og var Haukaliðið því sautján stigum undir, 43-26, þegar gengið var til hálfleiks. Keflavíkurkonur skoruðu fimm fyrstu stig seinni hálfleiksins en Tyson-Thomas var þá komin með 21 stig í leiknum og Keflavík með 22 stiga forskot, 48-26. Keflavík vann þriðja leikhlutann á endanum 22-7 og úrslitin voru ráðin enda Keflavíkurliðið komið 32 stigum yfir. Fjórði leikhlutinn var því aðeins formsatriði. Haukaliðið á næsta leik á heimavelli á laugardaginn og þar verður fróðlegt að sjá hvort Haukakonur eigi einhver svör á móti þessi geysisterka Keflavíkurliði en þrjá sigra þarf til að komast í lokaúrslitin.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira