Lengi lifir í gömlum glæðum. Það á svo sannarlega við í tilfelli Keflvíkingsins Damon Johnson.
Hann er nýorðinn 41 árs gamall og er þrátt fyrir háan íþróttaaldur enn í lykilhlutverki í liði Keflavíkur og hefur spilað frábærlega í vetur.
Hann spilaði fyrst á Íslandi árið 1996 og var þá fljótt í sérflokki og raðaði inn titlum með Keflavík. Það áttu ekki margir von á því að hann myndi bjóða upp á þá spilamennsku í vetur sem hann hefur skilað.
Garðar Örn Arnarson tók saman skemmtilega syrpu með Damon fyrr og nú. Það er síðan Queen sem leikur fyrir dansi.
Syrpuna má sjá í spilaranum að ofan.
Damon Johnson fyrr og nú
Tengdar fréttir

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Haukar 73-80 | Oddaleikur var það heillin
Einvígi Keflavíkur og Hauka er í járnum 2-2 og það þarf oddaleik til að fá fram sigurvegara.

Þessir gæjar borða ekki mæjones | Lokakaflinn í Keflavík
Haukar tryggðu sér oddaleik gegn Keflavík í gær eftir æsilegan lokasprett í Sláturhúsinu.

Hann tók Þórshamarinn upp | Tröllatroðsla hjá Usher
Í stöðunni 22-24 í leik Keflavíkur og Hauka í gær bauð Keflvíkingurinn Davon Usher upp á rosalega troðslu.