Stan Kroenke, eigandi St. Louis Rams, hefur í hyggju að byggja nýjan íþróttaleikvang í Los Angeles sem myndi nýtast tveimur liðum.
Þetta fullyrðir dagblaðið LA Times í dag en samkvæmt frétt blaðsins hefur Stan Kroenke, eigandi Rams, hannað leikvang sem er með tvo búningsklefa fyrir heimalið, tvö sett af skrifstofum og tvær eigendasvítur.
Kroenke hefur fjármagnið til að byggja leikvanginn án þess að fara í samstarf við annað lið en NFL-deildin lítur svo á að Los Angeles, sem hefur ekki átt NFL-lið síðan 1994, sé nægilega stór markaður til að þjóna tveimur liðum.
Það er þó skoðun margra að stutt sé í að Los Angeles eignist NFL-lið á nýjan leik en eigendur grannliðanna San Diego Chargers og Oakland Raiders eru sagðir vilja reisa leikvang í borginni sem liðin myndu deila.
75 prósent liðanna í NFL-deildinni þurfa að vera samþykk flutningi liðs á milli borga en eigendur liðanna koma saman í Phoenix í dag.
„Ég held að það verði eitt eða tvö lið í Los Angeles á næsta ári,“ sagði John Mara, eigandi New York Giants, en vildi þó ekki tilgreina hvaða félög það væru. Kosning um flutning félags á milli borga færi þó ekki fram fyrr en í fyrsta lagi í haust, þegar nýtt keppnistímabil hefst í deildinni.
Kroenke, sem á einnig stóran hlut í enska úrvalsdeilarfélaginu Arsenal, á arkitektarskrifstofu sem hannaði leikvanga fyrir bæði Dallas Cowboys og Indianapolis Colts.
Talið er að nýi leikvangurinn myndi kosta 1,86 milljarða Bandaríkjadala - jafnvirði um 255 milljarða íslenskra króna.
Vill byggja tveggja liða leikvang í Los Angeles
Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar

Mest lesið


Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool
Enski boltinn


Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR
Íslenski boltinn

Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri
Enski boltinn

„Ég get ekki beðið“
Handbolti


„Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“
Íslenski boltinn


Fleiri fréttir
