Handbolti

Guðmundur Árni næstmarkahæstur í stórsigri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðmundur Árni Ólafsson.
Guðmundur Árni Ólafsson. Mynd/Mors-Thy Håndbold
Guðmundur Árni Ólafsson átti góðan leik í kvöld þegar Mors-Thy vann öruggan heimasigur í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Mors-Thy vann leikinn 27-19 en þetta er þriðji deildarsigur liðsins í röð og liðið stefnir inn í úrslitakeppnina með sama áframhaldi.

Mors-Thy átti frábæran endasprett í leiknum en staðan var 11-11 í hálfleik.

Mors-Thy skoraði fimm fyrstu mörkin í seinni hálfleik og stakk síðan af í lokin með því að breyta stöðunni úr 22-18 í 26-18 á sex mínútna kafla.

Hægri hornamaðurinn Guðmundur Árni Ólafsson skoraði fimm mörk úr sex skotum í leiknum og var næstmarkahæstur í sínu liði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×