Handbolti

Gunnar Steinn og félagar óheppnir

Gunnar Steinn í leik með Gummersbach.
Gunnar Steinn í leik með Gummersbach. vísir/getty
Gummersbach var óheppið að taka ekki öll stigin á útivelli gegn Göppingen í dag.

Göppingen skoraði jöfnunarmark leiksins er 14 sekúndur voru eftir. Lokatölur 23-23 en hálfleikstölur voru 12-12.

Gunnar komst ekki á blað í leiknum en átti tvær stoðsendingar og stal boltanum tvisvar. Austurríkismaðurinn Raul Santos fór á kostum í liði Gummersbach og skoraði 10 mörk.

Gummersbach er í sjöunda sæti þýsku úrvalsdeildarinnar en Göppingen er í fimmta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×