Handbolti

Lið Dags á leið í undanúrslit

Dagur í leik með Berlin.
Dagur í leik með Berlin. vísir/getty
Lið Dags Sigurðssonar, Füchse Berlin, er svo gott sem komið í undanúrslit EHF-bikarsins.

Liðið lagði þá portúgalska liðið Porto, 25-20, og er með 8 stig í C-riðli eins og danska liðið Skjern. Markatala Berlin er betri og Berlin hefur líka betur í innbyrðisviðureignum.

Berlin á eftir leik gegn lélegasta liði riðilsins sem hefur ekki fengið stig það sem af er. Það ætti að vera ganga í garðinum hjá Degi og félögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×