Handbolti

Ótrúlegt sigurmark frá miðju skaut Zagreb áfram | Myndband

Anton Ingi Leifsson skrifar
Vísir/Skjáskjot
Ótrúlegt sigurmark leit dagsins ljós í leik HC Prvo Zagreb og Naturhouse La Rioja í Meistaradeildinni í handbolta fyrr í dag.

Staðan var jöfn 30-30 þegar tíminn var runnin út. Heimamenn í Zagreb áttu þá einungis aukakast eftir og var það af sautján metra færi..

Dusko Celica gerði sér lítið fyrir og skoraði úr aukakastinu. Boltinn hafði viðkomu í varnarveggnum og þaðan lak hann bara í netið.

Þetta ótrúlega mark má sjá hér að neðan.

Markið:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×