Rory McIlroy sýndi og sannaði af hverju hann er besti kylfingur heims á Dubai Desert Classic sem kláraðist í dag en hann sigraði á mótinu með yfirburðum. Þetta er aðeins annað mótið sem McIlroy tekur þátt í á tímabilinu en hann lék hringina fjóra á Emirates vellinum á 22 höggum undir pari.
Svíinn Alex Noren nældi sér í annað sætið á 19 undir pari eftir frábæran lokahring en sigurvegari síðasta árs, Stephen Gallacher, getur verið stoltur af titilvörninni eftir að hafa endað í þriðja sæti á 16 höggum undir pari.
McIlroy sýndi allar sínar bestu hliðar um helgina en til að setja það í samhengi þá fékk hann aðeins tvo skolla á 72 holum og leiddi mótið nánast frá byrjun. Fyrir sigurinn fær hann rúmlega 60 milljónir króna í sinn hlut.
Golfveislu helgarinnar er þó hvergi nærri lokið en fyrir lokahringinn á Phoenix Open sem er hluti af PGA-mótaröðinni leiðir skotinn Martin Laird með þremur höggum. Þar eru nokkur stór nöfn sem gætu gert atlögu að Laird á lokahringnum, meðal annars Bubba Watson, Zach Johnson og japanska ungstirnið Hideki Matsuyama.
Beint útsending frá lokahringnum hefst á Golfstöðinni klukkan 18:00.
