Bændur vilja nýja stjórn og forstjóra Sveinn Arnarsson skrifar 30. september 2014 07:00 Bændur eru margir hverjir óánægðir með hvernig á málum er haldið innan MS. Fréttablaðið/Stefán
Mikillar óánægju gætir meðal kúabænda, sem eru aðilar að Auðhumlu og þar með eigendur að Mjólkursamsölunni, með þá starfshætti sem MS viðhefur. Vilja sumir hverjir að boðað verði til fulltrúaráðsfundar þar sem kjörin verði ný stjórn Auðhumlu. Egill Eiríksson, kúabóndi á Seljavöllum við Höfn í Hornafirði og aðalfulltrúi í fulltrúaráði Auðhumlu, telur orðstír MS hafi farið niður á síðustu misserum og stjórnendur þar skuldi kúabændum svör vegna úrskurðar Samkeppniseftirlitsins. „Við kúabændur viljum ekki að svona sé staðið að málum. Okkur er umhugað um orðstír Mjólkursamsölunnar og viljum ekki að honum sé stefnt í voða. Neytendur verð að vera vissir um það að við séum fyrst og fremst að gæta hagsmuna þeirra,“ segir Egill.Ólafur Magnússon.Nú hefur Mjólkursamsalan ákveðið að samræma verðskrá sína á hrámjólk og nú greiða allir sama verðið fyrir mjólkina, 91,40 krónur. Ólafur Magnússon, fyrrverandi eigandi Mjólku, telur þann gjörning sanna það að Mjólkursamsalan hafi ekki farið eftir lögum. „Þetta er aumt yfirklór. Það eina sem þeir gera er að þeir hækka verð á hrámjólkinni innan samstæðunnar til jafns á við okkur sem stöndum utan kerfis. Þetta mun því ekki hafa nein áhrif á stöðuna eins og hún er. En að sama skapi þá sýnir þessi gjörningur að einhverju leyti játningu á því að þeir hafi ekki farið að lögum.“ Egill Eiríksson telur úrskurð Samkeppniseftirlitsins ekki Mjólkursamsölunni til hagsbóta og nefnir einnig að innflutta írska smjörið hafi svert mannorð fyrirtækisins. „Það var skrítin ákvörðun að flytja inn til landsins írskt smjör til íblöndunar við okkar góða smjör þegar við hefðum sannarlega getað framleitt það sjálf. Á sama tíma vorum við að flytja út hráefni til smjörgerðar sem hefði getað annað eftirspurninni.“ Egill vill skipta út forstjóra Mjólkursamsölunnar. „Ég tel í ljósi þeirrar stöðu sem uppi er núna að það sé réttast að kalla til fulltrúaráðsfundar þar sem ný stjórn yrði kjörin og í framhaldi af því myndi hún ráða nýjan forstjóra Mjólkursamsölunnar,“ segir Egill.
Tengdar fréttir „Fáránlegt að MS sé undanþegin samkeppnislögum“ Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, er fús til að taka umræðu um búvörusamningana á Alþingi og segist alls ekki hræddur við þá umræðu. 25. september 2014 07:00 Uggandi yfir athöfnum MS „Markaðsmisnotkun er glæpur gagnvart neytendum og í því getum við ekki tekið þátt,“ sagði Ásmundur Friðriksson, þingmaður, á Alþingi í dag. 23. september 2014 15:21 Guðni sagður ekki drengur góður Ólafur M. Magnússon segir Guðna Ágústsson gert sér fyrirsát í sjónvarpsviðtali í gær; greinilegt sé að tekin hafi verið ákvörðun af valdamiklum aðilum í mjólkuriðnaðinum um að sverta mannorð sitt. 29. september 2014 11:50 Verð á hrámjólk verður það sama fyrir alla MS breytir verðlagningu á ógerilsneyddri mjólk meðan á áfrýjunarferli stendur vegna úrskurðar Samkeppniseftirlitsins. 27. september 2014 17:27 Vill breyta lögum verði úrskurður Samkeppniseftirlits staðfestur Hanna Birna Kristjánsdóttir, ráðherra neytendamála, telur rétt að breyta lögum ef úrskurður Samkeppniseftirlitsins verður staðfestur fyrir dómstólum. Stríðir gegn almennri hugsun um hvernig samkeppni á að virka, segir ráðherrann. 26. september 2014 07:00 Notkun gervisykurs jafnvel hætt hjá Mjólkursamsölunni Ný rannsókn bendir til brenglaðs sykurþols vegna neyslu á gervisykri. Vöruþróunarstjóri MS segir að boðið hafi verið upp á mjólkurvörur með gervisykri sem valkost. Alltaf sé litið til Matvælaöryggisstofnunar Evrópu. 24. september 2014 07:00 Telur búvörulög skila árangri Guðni Ágústsson, framkvæmdastjóri Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði, telur það kerfi sem við búum við í dag hafa skilað um tveimur milljörðum til neytenda árlega. 25. september 2014 07:00 Ætlar ekki að biðja neytendur afsökunar strax "Mjólkursamsalan á allt undir velvild og tryggð og trúnaði við neytendur. Ef fyrirtækinu verður á í messunni þá vitaskuld biðst það afsökunar. Við teljum hins vegar að Samkeppnisefitrlitið hafi í þessu máli farið villu vegar,“ segir Einar Sigurðsson forstjóri MS. 25. september 2014 18:03 Samkeppnisbrot Mjólkursamsölunnar kalli á endurskoðun búvörulaga Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að samkeppnislagabrot Mjólkursamsölunnar kalli á tafarlausa endurskoðun búvörulaga. Hann segir ljóst að neytendur hafi orðið fyrir miklu tjóni vegna þessa og segir nauðsynlegt að Mjólkursamsölunni verði gert að keppa á sömu forsendum og aðrir. 23. september 2014 12:57 Hagnaðurinn aðeins innan við eitt prósent af veltu Mjólkursamsalan ehf. er í eigu tveggja fyrirtækja. 26. september 2014 07:00 Guðni svarar fyrir sig Guðni Ágústsson segir Mjólkursamsöluna einhverja helstu velgjörðarmenn Ólafs M. Magnússonar hjá Kú ehf, sem um getur. 29. september 2014 16:02 MS beggja vegna borðsins Tveir frá MS sitja í sex manna opinberri verðlagsnefnd búvara sem lögum samkvæmt ákveður afurðaverð til búvöruframleiðenda og verð búvara í heildsölu og tekur einnig á móti kvörtunum frá þeim sem starfa í greininni. 26. september 2014 19:06 „Eðlilegt að Mjólka greiddi hærra verð“ Egill Sigurðsson, formaður stjórnar Mjólkursamsölunnar, telur eðlilegt að fyrirtæki utan MS borgi hærra verð fyrir mjólkina en aðrir aðilar á markaði. "Fullyrði að úrskurður Samkeppniseftirlitsins er byggður á misskilningi,“ segir Egill. 25. september 2014 07:00 MS sektað um 370 milljónir króna Samkeppniseftirlitið lítur brot MS á samkeppnislögum alvarlegum augum. Niðurstaðan kemur fyrirtækinu á óvart og hyggst það áfrýja málinu. 22. september 2014 11:40 Leggja fram nýja kæru á hendur MS Forsvarsmenn Mjólkurbúsins KÚ hafa ákveðið leggja fram nýja kæru á hendur Mjólkursamsölunni. 24. september 2014 19:14 Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira
„Fáránlegt að MS sé undanþegin samkeppnislögum“ Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, er fús til að taka umræðu um búvörusamningana á Alþingi og segist alls ekki hræddur við þá umræðu. 25. september 2014 07:00
Uggandi yfir athöfnum MS „Markaðsmisnotkun er glæpur gagnvart neytendum og í því getum við ekki tekið þátt,“ sagði Ásmundur Friðriksson, þingmaður, á Alþingi í dag. 23. september 2014 15:21
Guðni sagður ekki drengur góður Ólafur M. Magnússon segir Guðna Ágústsson gert sér fyrirsát í sjónvarpsviðtali í gær; greinilegt sé að tekin hafi verið ákvörðun af valdamiklum aðilum í mjólkuriðnaðinum um að sverta mannorð sitt. 29. september 2014 11:50
Verð á hrámjólk verður það sama fyrir alla MS breytir verðlagningu á ógerilsneyddri mjólk meðan á áfrýjunarferli stendur vegna úrskurðar Samkeppniseftirlitsins. 27. september 2014 17:27
Vill breyta lögum verði úrskurður Samkeppniseftirlits staðfestur Hanna Birna Kristjánsdóttir, ráðherra neytendamála, telur rétt að breyta lögum ef úrskurður Samkeppniseftirlitsins verður staðfestur fyrir dómstólum. Stríðir gegn almennri hugsun um hvernig samkeppni á að virka, segir ráðherrann. 26. september 2014 07:00
Notkun gervisykurs jafnvel hætt hjá Mjólkursamsölunni Ný rannsókn bendir til brenglaðs sykurþols vegna neyslu á gervisykri. Vöruþróunarstjóri MS segir að boðið hafi verið upp á mjólkurvörur með gervisykri sem valkost. Alltaf sé litið til Matvælaöryggisstofnunar Evrópu. 24. september 2014 07:00
Telur búvörulög skila árangri Guðni Ágústsson, framkvæmdastjóri Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði, telur það kerfi sem við búum við í dag hafa skilað um tveimur milljörðum til neytenda árlega. 25. september 2014 07:00
Ætlar ekki að biðja neytendur afsökunar strax "Mjólkursamsalan á allt undir velvild og tryggð og trúnaði við neytendur. Ef fyrirtækinu verður á í messunni þá vitaskuld biðst það afsökunar. Við teljum hins vegar að Samkeppnisefitrlitið hafi í þessu máli farið villu vegar,“ segir Einar Sigurðsson forstjóri MS. 25. september 2014 18:03
Samkeppnisbrot Mjólkursamsölunnar kalli á endurskoðun búvörulaga Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að samkeppnislagabrot Mjólkursamsölunnar kalli á tafarlausa endurskoðun búvörulaga. Hann segir ljóst að neytendur hafi orðið fyrir miklu tjóni vegna þessa og segir nauðsynlegt að Mjólkursamsölunni verði gert að keppa á sömu forsendum og aðrir. 23. september 2014 12:57
Hagnaðurinn aðeins innan við eitt prósent af veltu Mjólkursamsalan ehf. er í eigu tveggja fyrirtækja. 26. september 2014 07:00
Guðni svarar fyrir sig Guðni Ágústsson segir Mjólkursamsöluna einhverja helstu velgjörðarmenn Ólafs M. Magnússonar hjá Kú ehf, sem um getur. 29. september 2014 16:02
MS beggja vegna borðsins Tveir frá MS sitja í sex manna opinberri verðlagsnefnd búvara sem lögum samkvæmt ákveður afurðaverð til búvöruframleiðenda og verð búvara í heildsölu og tekur einnig á móti kvörtunum frá þeim sem starfa í greininni. 26. september 2014 19:06
„Eðlilegt að Mjólka greiddi hærra verð“ Egill Sigurðsson, formaður stjórnar Mjólkursamsölunnar, telur eðlilegt að fyrirtæki utan MS borgi hærra verð fyrir mjólkina en aðrir aðilar á markaði. "Fullyrði að úrskurður Samkeppniseftirlitsins er byggður á misskilningi,“ segir Egill. 25. september 2014 07:00
MS sektað um 370 milljónir króna Samkeppniseftirlitið lítur brot MS á samkeppnislögum alvarlegum augum. Niðurstaðan kemur fyrirtækinu á óvart og hyggst það áfrýja málinu. 22. september 2014 11:40
Leggja fram nýja kæru á hendur MS Forsvarsmenn Mjólkurbúsins KÚ hafa ákveðið leggja fram nýja kæru á hendur Mjólkursamsölunni. 24. september 2014 19:14