Skuldaleiðréttingafrumvörp ríkisstjórnarinnar samþykkt á Alþingi 16. maí 2014 21:45 Þingfundir hafa verið langir og strangir undanfarna daga og hafa þeir staðið fram á kvöld. vísir/ Daníel
Skuldaleiðréttingafrumvörp ríkisstjórnarinnar urðu að lögum í kvöld þegar Alþingi samþykkti þau með 33 atkvæðum gegn 22. Annars vegar var frumvarpið um séreignarsparnað samþykkt og hins vegar frumvarpið um leiðréttingu höfuðstóls verðtryggðra lána. 54 mál voru á dagskrá Alþingis og voru flest þeirra afgreidd. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, lagði fram breytingartillögu við frumvarpið um leiðréttingu á höfuðstól verðtryggðra lána. Breytingartillagan fól í sér að hvorki hjón sem eiga hreina eign upp á 30 milljónir né þeir einstaklingar sem eiga hreina eign upp á 20 milljónir fái leiðréttingu. Þá lagði Árni Páll til að þau fimm prósent þjóðarinnar sem eru ríkust fái enga leiðréttingu. Breytingartillagan var felld ásamt öðrum breytingartillögum stjórnarandstöðunnar. Þá var frumvarp um veiðigjöld afgreitt sem lög frá Alþingi. Mál voru afgreidd á færibandi á þingi í kvöld. Má þar nefna lög um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, lög um lífsýnasöfn og lög um ýmsar gjaldskrárlækkanir. Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 16. maí 2014 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 9. september 2014. Þannig hljóðaði þingsályktunartillaga forsætisráðherra sem hann bar fram síðdegis í dag.
Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Fleiri fréttir Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Sjá meira