Tindastóll og Þór geta bæði stigið söguleg bikarskref í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. febrúar 2014 07:30 Helgi Rafn Viggósson er fyrirliði Tindastóls. Vísir/Stefán
Undanúrslitaleikir Powerade-bikars karla fara báðir fram í kvöld. Grindavík og Þór úr Þorlákshöfn mætast í Röstinni í Grindavík og Tindastóll tekur á móti ÍR í Síkinu á Sauðárkróki. Báðir leikir hefjast klukkan 19.15. Tindastóll og Þór geta bæði stigið sögulegt skref með því að tryggja sér sæti í bikarúrslitaleiknum. Lærisveinar Bárðar Eyþórssonar í 1. deildarliði Tindastóls hafa unnið alla 15 leiki sína í deild og bikar á tímabilinu og komist þeir í bikarúrslitaleikinn verða þeir fyrsta liðið utan úrvalsdeildar til að spila bikarúrslitaleik. Ellefu lið utan úrvalsdeildar hafa komist svona langt frá því að úrvalsdeildin var stofnuð 1978, þar af tvö á síðustu tuttugu árum, KFÍ í fyrra (13 stiga tap fyrir Keflavík) og Breiðablik 2005. Mótherjar þeirra úr ÍR eiga aftur á móti möguleika á því að komast í Höllina án þess að mæta liði úr úrvalsdeild en lærisveinar Örvars Þórs Kristjánssonar í ÍR hafa slegið út Breiðablik (1. deild), Þór Akureyri (1. deild) og goðsagnarlið Keflavíkur á leið sinni í undanúrslitin. Lærisveinar Benedikts Guðmundssonar í Þór úr Þorlákshöfn geta komist í fyrsta bikarúrslitaleikinn í sögu félagsins með sigri í Grindavík í kvöld en þórsliðið er þegar búið að ná sínum besta árangri í bikarnum. Benedikt fór á sínum tíma með Fjölni í fyrsta sinn í Höllina. Mótherjar þeirra úr Grindavík hafa verið mikið bikarlið undanfarin ár enda hafa Grindvíkingar spilað þrjá af síðustu fjórum bikarúrslitaleikjum.
Dominos-deild karla Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport Fleiri fréttir Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Sjá meira