Handbolti

„Þjálfarann virðist skorta traust á mér“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þórir Ólafsson er mögulega á leið frá Póllandi.
Þórir Ólafsson er mögulega á leið frá Póllandi. fréttablaðið/stefán
Þórir Ólafsson fór mikinn með íslenska landsliðinu á æfingamótinu í Þýskalandi um liðna helgi. Selfyssingurinn 34 ára var næstmarkahæsti leikmaður liðsins þrátt fyrir að hafa verið hvíldur í lokaleiknum gegn Þjóðverjum vegna minniháttar meiðsla. Fjarvera Þóris og fleiri lykilmanna var augljós í stóru tapi.

Þórir spilar með KS Vive Kielce í Póllandi og hefur gert undanfarin tvö og hálft ár. Samningur hans við félagið rennur út í sumar.

„Maður er farinn að líta í kringum sig. Það bíða margir eftir EM og ég held að það sé ekki mikið að fara að gerast fyrir mótið,“ segir hornamaðurinn örvhenti. Hann lítur á mótið sem glugga fyrir sig til að minna á sig.

„Klárlega. Ég vonast til þess að ganga frá mínum málum sem fyrst eftir mótið sama hvar það verður,“ segir Þórir. Okkar maður á í mikilli samkeppni um stöðu í liðinu því landsliðsmaður Króata, Ivan Cupic, er einnig á mála hjá félaginu.

„Ég hef spilað minna í Meistaradeildinni en í staðinn spilað kannski 45-60 mínútur í deildinni,“ segir Þórir sem spilaði mikið í desembermánuði. „Það hefði verið gaman að spila meira í Meistaradeildinni en þjálfarann virðist skorta traust á mér. Það verður að finna út úr því.“

Þjálfari Þóris hjá pólska liðinu er Bogdan Wenta, einn besti leikmaður Pólverja frá upphafi, sem síðar spilaði einnig með landsliði Þjóðverja.

Kielce hefur orðið pólskur meistari undanfarin tvö ár og trónir á toppi deildarinnar eftir þrettán umferðir með jafn marga sigra. Liðið hefur þriggja stiga forskot á erkifjendurna í Wisla Pock en liðin tvö hafa verið í sérflokki undanfarin ár.

„Útlendingum í deildinni er þó að fjölga og bæði spænskur og sænskur þjálfari kominn inn í deildina. Mér sýnist deildin því aðeins vera á uppleið og liðin í kring að styrkja sig,“ segir Þórir. Aðspurður um pólskukunnáttuna segist Þórir ekki hafa verið duglegur að læra en geti þó vel bjargað sér.

„Það eru margir ánægðir með hvað ég kann en ég gæti verið búinn að læra meira hefði ég farið í skóla.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×