Tónlist

Of Monsters and Men ein af tíu verstu indísveitunum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Daniel Bromfield hjá vefsíðunni Daily Emerald velur tíu verstu indísveitirnar og birtir listann á vefsíðunni. Íslenska hljómsveitin Of Monsters and Men kemst á blað.

„Of Monsters and Men, íslensk sveit sem hljómar eins og hún vilji fyrir alla muni komast af eyjunni og flytja til, tja, Virginíu eða eitthvað,“ skrifar Daniel um sveitina.

Aðrar hljómsveitir sem komast á lista Daniels eru Passenger, The Lumineers og Imagine Dragons svo dæmi séu tekin. Daniel er ekki sáttur við þá stefnu sem indítónlist hefur tekið síðustu ár.

„Nú eru útgáfufyrirtæki hungruð í völd, allir ákváðu að hljóma eins og James Blunt og allt er að fara til fjandans.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×