Ekkja mannsins sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans í október í fyrra vegna mistaka hjúkrunarfræðings féll frá stærsta lið bótakrafna við fyrirtöku málsins í dag. Hafði hún krafist bóta upp á tæplega 7,5 milljónir króna vegna missis framfæranda sem nú hefur verið fallið frá.
Fjórar einkaréttarkröfur eru tilgreindar í ákærunni en ekkja mannsins og börn hennar fara fram á samtals sex milljónir króna, 1,5 milljónir króna hver í miskabætur, auk rúmlega 220 þúsund króna hver fyrir útfararkostnaði. Nánar má lesa um kröfurnar í ákærunni neðst í fréttinni.
Hjúkrunarfræðingurinn neitaði sök í málinu í júní síðastliðnum og það gerði lögmaður spítalans sömuleiðis fyrir hönd spítalans. Hjúkrunarfræðingurinn gæti átt yfir höfði sér allt að sex ára fangelsisvist.
Mál þetta markar ákveðin tímamót þar sem aldrei fyrr hefur nokkur verið ákærður fyrir mál af þessu tagi af hálfu ríkisins. Hinn 21. maí síðastliðinn gaf ríkissaksóknari út ákæru á hendur Landspítalanum og hjúkrunarfræðingnum fyrir manndráp af gáleysi og brot á hjúkrunarlögum. Málið á rætur sínar að rekja til ársins 2012.
„Verklagsreglur sem ákærða þekkti vel til“
Í ákærunni segir að hjúkrunarfræðingurinn hafi unnið kvöldvakt í beinu framhaldi af dagvakt á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut miðvikudaginn 3. október 2012. Við umönnun sjúklingsins hafi hjúkrunarfræðingnum láðst að tæma loft úr kraga barkarraufartúbu þegar hún tók sjúklinginn úr öndunarvél og setti talventil á túbuna.
Þá hafi hún ekki veitt því athygli að slökkt var á öryggishljóði vaktara (monitors) sem gefið hefi frá sér hljóð þegar súrefnismettun sjúklingsins fór fallandi. Afleiðingarnar hafi orðið þær að sjúklingurinn gat einungis andað að sér lofti en ekki frá sér og lést hann skömmu síðar.

„Nefnt eftirlit var hluti af starfsskyldum ákærðu samkvæmt verklagsreglum spítalans sem ákærða þekkti vel til,“ segir í ákærunni.
Einnig er hún sökuð um að hafa brugðist tilkynningaskyldu með því hafa ekki látið þann hjúkrunarfræðing sem varð eftir á stofu sjúklingsins vita að hún hafi sett á hann talventil.
„Þessi vanræksla ákærðu stuðlaði enn frekar að því að mannsbani hlaust af gáleysi hennar.“
Margir samverkandi þættir - Algengasta ástæða mistaka
Niðurstaða rannsóknar spítalans var sú að margir samverkandi þættir hefðu valdið mistökunum, en það er algengasta ástæða mistaka í heilbrigðiskerfinu. Það þýðir að samspil umhverfis, starfsmanna, aðstæðna og í sumum tilfellum sjúklingsins skapi augnablik eða kringumstæðum þar sem mistök eiga sér stað.

Ekkjan vildi ekki kæra
Maðurinn var 76 ára þegar hann lést en hann lá inn á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að hafa undirgengist hjartaaðgerð. Ekkja mannsins vildi ekki leggja fram kæru og í samtali við Stöð 2 óskaði hún hjúkrunarfræðingnum alls hins besta.
Gagnaöflun í málinu er lokið og verður því framhaldið hinn 30. janúar næstkomandi.