Tónlist

Blóðug og nakin hjón

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Fyrirsætan Behati Prinsloo leikur aðalhlutverkið í nýju myndbandi hljómsveitarinnar Maroon 5 við lagið Animals en Behati er gift söngvara sveitarinnar, Adam Levine.

Adam leikur eltihrelli Behatis í myndbandinu en hann vinnur einnig í kjötbúð. Myndbandið er afar drungalegt en stjörnuhjónin fækka fötum í því og undir lok þess er hellt yfir þau blóði.

Adam og Behati gáfu í skyn að myndbandið yrði blóðugt í byrjun þessa mánaðar þegar Behati birti mynd af þeim hjónum á tökustað.

Leikstjóri myndbandsins er Samuel Bayer sem hefur leikstýrt myndböndum á borð við What Goes Around...Comes Around með Justin Timberlake, American Idiot með Green Day og Smells Like Teen Spirit með Nirvana.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×