Talið er að um lítinn atburð sé að ræða enn sem komið er og vegna þrýstings frá jöklinum er óljóst hvort gosið muni eingöngu verða undir jökli eða koma upp úr honum.
English version here.
Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF er komin að jöklinum með sérfræðinga frá Veðurstofunni og Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands ásamt fulltrúum Almannavarna innanborðs. Ekki er að sjá gosmökk yfir jöklinum. Engar vísbendingar eru um bráðnun frá jöklinum eða hlaup vegna goss.
Á þessu stigi miðast viðbúnaður við lítinn atburð. Búið er að loka Jökulsárgljúfrum og hafin rýming ferðamanna þaðan sem og af Dettifosssvæðinu. Að svo stöddu er ekki talin ástæða til að rýma íbúa- og frístundabyggð í Kelduhverfi, Öxarfirði og Núpasveit. Fólk á þessu svæði er hvatt til að fylgjast grannt með fréttum og vera í stöðugu farsímasambandi.
Talið er að lítið hraungos sé hafið undir Dyngjujökli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum. Talið er að um 150-400 metra þykkur ís sé yfir svæðinu. Litakóði fyrir flug hefur verið færður upp færður úr appelsínugulu í rautt. Skjálfti að stærð 4,5 stig mældist klukkan 14:04.
Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF fór í loftið um hádegið með sérfræðinga frá Veðurstofunni og Jarðvísindastofnun Háskólans ásamt fulltrúum Almannavarna. Gögn frá tækjabúnaði vélarinnar munu berast síðar í dag.
Gögn frá ratsjám og vefmyndavélum eru að berast og sýna ekki merki um breytingar á yfirborði jökulsins.
Íslagið á því svæði þar sem talið er að gos sé hafið er um 100-400 metra þykkt. Það mun því líklega taka nokkra stund að bræða ísinn ofan af sér.Melissa Anne Pfeffe, sérfræðingur á sviði ösku- og efnadreifingar hjá Veðurstofunni, segir í samtali við blaðamann Vísis að enn sé um lítið magn kviku að ræða sem nái ekki að bræða af sér ísinn. Því er ekki talið líklegt að flóð verði mikið af þessum völdum.
Veðurstofa Íslands hefur sent frá sér skýrslu byggða á jarðskjálftamælingum, GPS-mælingum og vatnssýnum um stöðu mála vegna jarðhræringanna í nágrenni Bárðarbungu og Dyngjujökli. Enginn gosmökkur hefur enn sést en sterkar vísbendingar eru um gos undir jökli.
Gosmökkur
Hæð: Sterkar vísbendingar um gos undir jökli. Enginn gosmökkur.
Stefna: Sterkar vísbendingar um gos undir jökli. Enginn gosmökkur.
Litur: Sterkar vísbendingar um gos undir jökli. Enginn gosmökkur.
Gjóskufall: Sterkar vísbendingar um gos undir jökli. Enginn gosmökkur.
Eldingar: Sterkar vísbendingar um gos undir jökli. Enginn gosmökkur.
Drunur: Sterkar vísbendingar um gos undir jökli. Enginn gosmökkur.
Bræðsluvatn
Vatnshæðar- og leiðnimælingar við Upptyppinga sýna ekki gildi utan þess sem við er að búast miðað við mælingar síðastliðinn áratug. Það myndi taka 0-20 klst fyrir mögulegt bræðsluvatn frá Dyngjujökli að berast að mælistöð við Upptyppinga.
Aðstæður á gosstað
Sterkar vísbendingar um gos undir jökli.
Órói
Klukkan 11:18 fór að bera á skjálftaóróa á bilinu 1-1,5 Hz. Þetta bendir til mögulegs samspils á milli íss og kviku. Óróanum svipar til þess sem mældist á meðan gos var í Fimmvörðuhálsi þar sem flæðandi hraun komst í snertingu við ís. Engin merki um sprengingar sjást í óróagögnum sem benda til þess að mjög lítið kvikumagn sé að koma upp á yfirborð.
Jarðskjálftar
Jarðskjálftatíðni er það há að atburðir skarast á og erfitt er að greina þá í sundur. Talið er að flestir jarðskjálftarnir séu á 5-10 km dýpi sem er talið vera botn berggangsins. Gangurinn hefur lengst um 5 km til norðurs síðastliðinn sólarhring.
GPS-aflögun
Nýjustu gögn frá GPS landmælum benda til þess að kvika sé enn að flæða inn í bergganginn. Frá því skjálftavirknin byrjaði þann 16. ágúst hefur 20 cm heildarfærsla mælst yfir bergganginn.
Samkvæmt módelreikningum er heildarrúmmál kviku í bergganginum u.þ.b. 250 milljón rúmmetrar. GPS stöðvarnar á Dyngjuhálsi og Kverkfjöllum sýna áframhaldandi aflögun.
Heildarmat
Litakóði fyrir flug hefur verið færður úr appelsínugulu yfir í rautt þar sem gos undir jökli er talið vera hafið. Ísþykkt þar sem kvikan gæti verið í snertingu við ís er mjög óviss og gæti verið á bilinu 100-400 m. Það myndi taka kviku um 0-20 klst að brjótast í gegnum ísinn. Það er einnig mögulegt að kvika nái ekki að bræða sig upp úr jöklinum.