
Færri skjálftar og enginn gosórói

Dældirnar eru á vatnaskilum Grímsvatna og Jökulsár á Fjöllum. Vatnsmagn í Grímsvötnum hefur aukist lítillega en ekki í Jökulsá á Fjöllum þannig að vatnið er enn undir jöklinum. Ekki var áður vitað um þesar dældir og skjálftavirkni hefur ekki verið mikil þar sem þær eru.
Vísindamenn mátu niðurstöðurnar fram eftir kvöldi, en ekki liggur fyrir hvort þarna hefur orðið gos undir jöklinum, eða hvort jarðhiti hefur valdið bráðnuninni, eða hvort gos er þarna ef til vill enn í gangi, en vísindamenn ætla að fljúga aftur yfir svæðið nú í morgunsárið og kanna þetta nánar.
Samhæfingastöð Almannavarna í Skógarhlíð var mönnuð í ljosi þessara nýju upplýsinga.
Annars var skjálftavirknin norðan Vatnajökuls á svipuðum slóðum og áður, en heldur minni í nótt en í fyrrinótt. Tveir skjálftar upp á fjögur stig urðu í Bárðarbungu klukkan hálf tvö og hálf fjögur í nótt og fáeinir smáskjáftar urðu í í grennd við Öskju. Hitaleiðni hefur orðið vart í Öskjuvatni.
Tengdar fréttir

„Erfitt að útskýra með öðru en að þarna sé töluverður hiti undir“
Víðir Reynisson, deildarstjóri á almannavarnadeild lögreglu, segir sigdældirnar 4-6 kílómetra á lengd og verði farið í flug strax í birtingu í fyrramálið til að meta aðstæður að nýju.

„Bendir ekkert til þess að stórt gos sé í gangi“
Jarðeðlisfræðingurinn Magnús Tumi Guðmundsson segir skort á skjálftaóróa benda til þess að ekki sé stórt gos í gangi á þeim stað þar sem vísindamenn urðu varir við sigkatla suðsuðaustur af Dyngjujökli í dag.

Ekki hægt að útiloka að gos sé hafið
"Vísindamenn, í flugi í kvöld, sáu að þeir telja nýjar sprungur eða sigkatlar sem hafa myndast í jöklinum,“ segir Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarnardeildar, í samtali við Vísi í kvöld.

Sigkatlarnir 10-15 metra djúpir
Sigurlaug Hjaltadóttir, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofunni, segir að sigkatlarnir suðsuðaustur af Bárðarbungu séu fjórir talsins á 4-6 kílómetra langri sprungu.

Nýir sigkatlar gætu bent til goss
Fjögurra til sex kílómetra langar sprungur hafa myndast sunnan við af Bárðarbungu. Þetta staðfestir starfsmaður Veðurstofu Íslands.